Leikskólinn Sjáland
Leikskólinn Sjáland
Leikskólinn Sjáland

Stuðningur barna í leikskólastarfi

Langar þig að hafa áhrif og skipta máli í lífi dýrmætustu íbúa Garðabæjar?

Við leitum að snillingi í stuðning í fullt starf með það að sjónarmiði að um framtíðarstarf sé að ræða.

Leikskólinn Sjáland er sjálfstætt starfandi leikskóli sem vinnur eftir Fjölvísistefnunni. Hún byggir á virðingu fyrir margbreytileika fólks og fjölbreyttum námsaðferðum. Markmiðið er að mæta nemendum þar sem þeir eru staddir og stuðla að jákvæðri og sterkri sjálfsmynd. Gildi okkar í starfi eru jákvæðni, nákvæmni og virðing.

Nú leitum við að þroskaþjálfum, leikskólakennurum eða starfsfólki með annars konar menntun við hæfi til að sinna uppeldi og menntun nemenda sem þurfa stuðning í námi. Viðkomandi myndi styðja við börn í daglegu námi inni á kjarna sem og í einstaklingsvinnu þar sem unnið er markvisst með ákveðna færniþætti. Í leikskólanum starfa þjálfar saman í teymi og leggjum við mikla áherslu á samvinnu. Næsti yfirmaður er sérkennslustjóri. Börnin sem vinnan snýr að eru með ólíkar þarfir og mun viðkomandi starfsmaður koma að þjálfun hjá fleiri en einu barni.

Skólinn er staðsettur við ströndina í Sjálandshverfinu í Garðabæ í nýlegu og rúmgóðu húsnæði. Nánari upplýsingar um skólann má finna á heimasíðunni okkar www.sjaland.is

Eingöngu kemur til greina að ráða fólk sem hefur lokið B.ed gráðu í leik- eða grunnskólaakennslu, uppeldis- og menntunarfræði, þroskaþjálfun, iðjuþjálfun eða einstaklinga með leyfisbréf í leikskóla/grunnskóla.
Góð hæfni í íslensku er grunnskilyrði
Good Icelandic language skills required

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Uppeldi og menntun nemenda í samræmi við verklag og námsskrá skólans
  • Samskipti og samvinna við foreldra
  • Halda utan um einstaklingsnámsskrá með leiðsögn sérkennslustjóra
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Menntun sem nýtist í starfi
  • Reynsla af kennslu, þjálfun eða vinnu með börnum
  • Áreiðanleiki, nákvæm vinnubrögð og vinnusemi
  • Virðing fyrir nemendum
  • Jákvætt viðhorf og framfaramiðað hugarfar
  • Vönduð og fagleg framkoma
  • Hæfni til að vinna að jákvæðum skólabrag
  • Hæfni til að afla sér og miðla þekkingu og upplýsingum á íslensku
Fríðindi í starfi
  • Virk skemmtinefnd og reglulegir viðburðir
  • Dagleg útivera
  • Stytting vinnuvikunnar eru 2 frídagar í mánuði (öðrum er safnað upp fyrir t.d. frí í dymbilviku og aðra daga þegar nemendur eru í fríi)
  • Fríar máltíðir, erum með frábæran verðlaunakokk í starfi
  • Mætingarbónus
  • Starfsmannaafsláttur af leikskólagjöldum fyrir starfsmenn Garðabæjar
Auglýsing birt20. september 2024
Umsóknarfrestur4. október 2024
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenskaMjög góð
Staðsetning
Vesturbrú 7, 210 Garðabær
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.KennslaPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.MetnaðurPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.SkipulagPathCreated with Sketch.Teymisvinna
Vinnuumhverfi
Hentugt fyrir
Starfsgreinar
Starfsmerkingar