![Bláa Lónið](https://alfredprod.imgix.net/logo/b98bb06e-b205-4e99-b85e-702d3ca71626.png?w=256&q=75&auto=format)
Bláa Lónið
Bláa Lónið er fjölbreyttur, spennandi en umfram allt skemmtilegur vinnustaður. Hjá okkur starfar fólk á öllum aldri, af ólíkum uppruna og í ólíkum störfum. Draumastarfið þitt gæti verið handan við hornið.
Undirstaðan í öllu því sem við gerum er að skapa góðar minningar fyrir gesti okkar. Það gerum við með því að hafa gleði og umhyggju að leiðarljósi, ásamt því að bera virðingu fyrir gestum okkar og hvert öðru.
Ánægja starfsmanna og ánægja gesta er samofin. Við leggjum okkur fram við að skapa góðan starfsanda og viðhorfskannanir staðfesta mikla starfsánægju. Við viljum að þér líði vel í vinnunni. Hjá okkur starfa fremstu matreiðslumenn landsins og starfsmenn fá að að njóta þess í fyrsta flokks mötuneyti. Það verður enginn svangur í vinnunni hjá Bláa Lóninu.
Við vinnum með fólki og fyrirtækjum af ólíkum toga. Starfsmenn njóta þessara tengsla. Sem dæmi má nefna kort í líkamsrækt, afslættir af ýmis konar vörum, þjónustu og afþreyingu.
Við ræktum félagslífið með skipulögðum hittingum utan vinnutíma. Við skemmtum okkur, ýmist öll saman eða innan einstakra sviða og deilda. Við erum stærri en þú kannski heldur. Hjá okkur starfa tæplega 700 manns með fjölbreyttan bakgrunn og reynslu. Við erum ólík, en lærum af hvort öðru. Saman myndum við öfluga heild.
![Bláa Lónið](https://alfredprod.imgix.net/cover/06bfe008-a637-4b2d-937a-956b432b0b7a.png?w=1200&q=75&auto=format)
Umsjónarmaður matstofu og fundarherbergja
Bláa Lónið hf. leitar að jákvæðum og metnaðarfullum einstaklingi til að hafa umsjón með matstofu skrifstofuhúsnæðis okkar í Urriðaholti. Viðkomandi mun sinna fjölbreyttum verkefnum sem tengjast daglegum rekstri eldhússins, tilfallandi innkaupum á hráefnum, umsjón með pöntunum, framreiðslu á mat, frágangi, uppvaski og þrifum ásamt þjónustu við fundarherbergi.
Um starfið:
-
Um er að ræða fullt starf með hefðbundnum dagvinnu tíma alla virka daga.
-
Æskilegt er að umsækjandi hafi náð 25 ára aldri og geti hafið störf sem fyrst.
Hæfniskröfur:
-
Góð samskipta- og samstarfshæfni
-
Áreiðanleiki og stundvísi
-
Rík þjónustulund
-
Sjálfstæð og öguð vinnubrögð
-
Frumkvæði og sveigjanleiki
-
Reynsla af sambærilegu starfi er kostur
-
Íslenskukunnátta er skilyrði
Umsóknarfrestur er til og með 19. febrúar 2025
Bláa Lónið er fjölbreyttur, spennandi og skemmtilegur vinnustaður og er lögð rík áhersla á öfluga liðsheild og góðan starfsanda. Starfsfólk Bláa Lónsins nýtur fjölbreyttra fríðinda í starfi; aðgang að gæðamötuneyti, styrki til líkamsræktar, aðgang að Bláa Lóninu og ýmsa afslætti af vörum og þjónustu félagsins. Einnig býðst starfsfólki reglulega að nýta ýmis tilboð hjá samstarfsaðilum okkar.
Ef þú hefur áhuga á að vera hluti af öflugu og jákvæðu starfsumhverfi, þá viljum við heyra frá þér!
Auglýsing birt6. febrúar 2025
Umsóknarfrestur19. febrúar 2025
Tungumálahæfni
![Íslenska](https://alfredflags.imgix.net/is.png?w=60&h=60)
Nauðsyn
Staðsetning
Urriðaholtsstræti 2-4, 210 Garðabær
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (3)
Sambærileg störf (12)
![Byko](https://alfredprod.imgix.net/logo/is-b284fdfd-9d7b-462d-bb53-4c414046ea8d.png?w=256&q=75&auto=format)
Sumarstarf Timburafgreiðsla - BYKO Selfossi
Byko
![AB varahlutir - Akureyri](https://alfredprod.imgix.net/logo/25558671-a865-48c7-9472-2c92914e6ebd.png?w=256&q=75&auto=format)
Fjölbreytt starf í verslun á Akureyri
AB varahlutir - Akureyri
![Heilbrigðisstofnun Vesturlands](https://alfredprod.imgix.net/logo/is-aa16422c-2fb6-4d3a-ab7a-d88ca06017e2.png?w=256&q=75&auto=format)
Afleysing - Móttökuritari Akranesi
Heilbrigðisstofnun Vesturlands
![Gyllti Kötturinn](https://alfredprod.imgix.net/logo/is-5638a52b-1fbf-407e-9bdd-4faddb70ea15.jpeg?w=256&q=75&auto=format)
Starfsmaður í tískuvöruverslun
Gyllti Kötturinn
![Icelandair](https://alfredprod.imgix.net/logo/33d72d94-4bc1-4f22-aa39-e6e0d4fca96d.png?w=256&q=75&auto=format)
Sumarstörf í inn- og útflutningi á Keflavíkurflugvelli
Icelandair
![ICEWEAR](https://alfredprod.imgix.net/logo/a3fa274c-4c2c-4258-bf98-99d68ecd99be.png?w=256&q=75&auto=format)
Sumarstörf Icewear - Húsavík
ICEWEAR
![Verkfærasalan ehf](https://alfredprod.imgix.net/logo/is-eb2b2952-8d83-45b7-9211-4eb3ccafd7a5.png?w=256&q=75&auto=format)
Starfsmaður í verslun Verkfærasölunnar á Akureyri óskast
Verkfærasalan ehf
![Matarkompani](https://alfredprod.imgix.net/logo/a2625aac-5d33-4720-bc63-a586494ff633.png?w=256&q=75&auto=format)
Pökkun á matvæli.
Matarkompani
![Oto Restaurant](https://alfredprod.imgix.net/logo/is-4261f0b0-0781-4956-be92-a5ed6df1dd32.png?w=256&q=75&auto=format)
Langar þig að vinna á OTO vinsælu og spennandi veitingastað?
Oto Restaurant
![Flatey Pizza](https://alfredprod.imgix.net/logo/e9405153-dbcf-4dec-8f17-c409bd560c1d.png?w=256&q=75&auto=format)
Pizzubakari / Pizza Chef
Flatey Pizza
![Reykjavíkurborg - Velferðarsvið](https://alfredprod.imgix.net/logo/is-8b5068b1-2da0-4395-b0ee-b51385a40264.png?w=256&q=75&auto=format)
Stuðningsfulltrúi óskast á Skúlagötu 46
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið
![Ráðlagður Dagskammtur](https://alfredprod.imgix.net/logo/6218fd8d-a09f-42a3-bf7d-822dc839df1e.png?w=256&q=75&auto=format)
Hlutastarf
Ráðlagður Dagskammtur