

Þroskaþjálfi - Víðistaðaskóli
Víðistaðaskóli óskar eftir að ráða þroskaþjálfa til starfa sem fyrst
Við í Víðistaðaskóla óskum eftir að ráða þroskaþjálfa sem fyrst til að annast námsaðlögun og stuðning við fjölbreyttan nemendahóp í samvinnu við umsjónarkennara. Viðkomandi aðili er viðbót við góðan hóp starfsmanna við öll stig skólans. Við leitum eftir samviskusömum, glöðum og duglegum aðila sem vinnur vel í hóp og er tilbúinn að mæta nemendum okkar á þeim stað sem þau eru.
Í Víðistaðaskóla eru rúmlega 500 nemendur og um 100 starfsmenn. Við leggjum áherslu á fjölbreytileikann, líðan nemenda og fjölbreytta kennsluhætti. Leiðarljós skólans eru Ábyrgð - Virðing og Vinátta. Í skólanum er unnið eftir SMT skólafærni þar sem lögð er áhersla á að styrkja og efla jákvæð samskipti milli nemenda sem og annarra í skólasamfélaginu. Við erum heilsueflandi grunnskóli sem hugsar um umhverfi sitt í anda Græn fánans.
Í Víðistaðaskóla er góður starfsandi og samheldni meðal þeirra sem í skólanum starfa. Við erum áhugasöm og metnaðarfull í því sem við tökum okkur fyrir hendur.
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Annast námsaðlögun og stuðning við fjölbreyttan nemendahóp í samvinnu við umsjónarkennara.
- Stuðla að velferð nemenda í góðu samstarfi við foreldra/forráðamenn og annað fagfólk.
- Vinna með kennurum og deildarstjóra að gerð einstaklingsnámskráa og námsumhverfis sem hæfa ólíkum þörfum nemenda.
- Að veita nemendum með sérþarfir þjálfun, leiðsögn og stuðning.
- Vinna að því að skapa gott andrúmsloft í skólanum ásamt því að tryggja öryggi og velferð nemenda og starfsfólks.
- Önnur verkefni samkvæmt starfslýsingu sem yfirmaður felur starfsmanni.
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Háskólamenntun á sviði þroskaþjálfunar og starfsleyfi sem slíkur
- Þekking og reynsla af vinnu með nemendum með fjölþættan vanda.
- Áhugi á starfi með börnum og metnaður til að þróa öflugt skólastarf.
- Góð færni í samvinnu, samskiptum og teymisvinnu.
- Frumkvæði, sjálfstæði og skipulögð vinnubrögð.
- Þekking á SMT kostur.
- Stundvísi og samviskusemi.
- Mjög góð íslenskukunnátta.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Dagný Kristinsdóttir, skólastjóri, í síma 6645890, [email protected] eða Valgerður Júlíusdóttir, aðstoðarskólastjóri, í síma 6645891, [email protected]
Nánari upplýsingar um skólann má finna á heimasíðunni http://www.vidistadaskoli.is
Umsóknarfrestur er til og með 24. nóvember 2025
Greinargóð ferilskrá og leyfisbréf fylgi umsókn. Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Þroskaþjálfafélags Íslands.
Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins.
Íslenska























