Reykjavíkurborg - Velferðarsvið
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið

Stuðningsráðgjafi óskast á íbúðakjarna í Grafarvogi

Spennandi starf á íbúðakjarna

Íbúðarkjarninn Vættaborgir óskar eftir að ráða háskólamenntaðan stuðningsráðgjafa.

Hlutverk stuðningsráðgjafa í íbúðakjarna fyrir fatlaða er m.a. annars að byggja upp og þróa stuðning við fullorðið fatlað fólk á heimili sínu.

Unnið er í teymum og markmið þjónustunnar er að mæta þörfum íbúanna, á heildstæðan og einstaklingsmiðaðan hátt, efla lífsgæði einstaklinga og styðja þá til sjálfstæðs lífs eins og að búa sér eigin heimili, nýta vinnutengda stoðþjónustu, auka samfélagsþátttöku og njóta menningar og félagslífs.

Starfað er eftir stefnu Reykjavíkurborgar í málefnum fatlaðs fólks og í samræmi við samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks, gildandi lög og reglugerðir í málefnum fatlaðs fólks og félagsþjónustu og önnur viðeigandi lög.

Sólarhringsþjónusta er veitt á heimilinu, allt árið um kring.

Unnið er á dag-, kvöld-, helgar- og næturvöktum eftir samkomulagi.

Starfshlutfall er 80-100%. Krafa gerð um að geta unnið aðra hvora helgi.

Kostur ef viðkomandi getur hafið störf sem fyrst.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Hvetur og styður íbúa til sjálfshjálpar og félagslegrar virkni.
  • Er leiðandi í starfsmannahópnum þegar kemur að því að vinna eftir verklagi og hugmyndafræði starfsstaðar.
  • Tekur þátt í að fræða og leiðbeina öðru starfsfólki í samráði við stjórnendur.
  • Skipuleggur og ber ábyrgð á framkvæmd einstaklingsáætlana í samráði við forstöðumann og teymisstjóra.
  • Hefur yfirsýn yfir þá þjónustu sem þjónustunotendur eru að fá.
  • Tekur þátt í teymisvinnu með öðrum starfsmönnum.
  • Tekur þátt í sköpun og þróun nýrra tækifæra fyrir þjónustunotendur.
  • Umönnun, stuðningur, hvatning og aðstoð við þjónustunotendur til félagslegrar virkni og sjálfshjálpar.
  • Stuðla að góðum samskiptum við aðstandendur íbúa.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólamenntun á sviði félags-, heilbrigðis- og/eða menntavísinda sem nýtist í starfi.
  • Reynsla af starfi með einstaklingum með ólíkar þjónustuþarfir.
  • Reynsla og þekking á þjónandi leiðsögn, hugmyndafræðinni um sjálfstætt líf og valdeflingu.
  • Góð hæfni í mannlegum samskiptum og leiðtogahæfni.
  • Frumkvæði, skipulagshæfni, sveigjanleiki og sjálfstæði í vinnubrögðum.
  • Góð íslenskukunnátta (B2 eða hærra samkvæmt samevrópskum matsramma).
  • Góð almenn tölvukunnátta.
  • Hreint sakavottorð í samræmi við lög, sem og reglur Reykjavíkurborgar.
Auglýsing birt10. nóvember 2025
Umsóknarfrestur2. desember 2025
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Borgartún 12-14, 105 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.SamviskusemiPathCreated with Sketch.StundvísiPathCreated with Sketch.TeymisvinnaPathCreated with Sketch.Umönnun (barna/aldraðra/fatlaðra)
Starfsgreinar
Starfsmerkingar