Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær

Kennari í stærðfræði á unglingastigi - Hvaleyrarskóli

Hvaleyrarskóli óskar eftir að ráða kennara í 70-100% kennslu á unglingastigi vegna afleysinga. Meðal kennslugreina er stærðfræði í 9. og 10. bekk.

Í Hvaleyrarskóla eru um 350 nemendur í 1. til 10. bekk. Einkunnarorð skólans eru ábyrgð, kurteisi og samvinna og endurspeglast allt skólastarfið í þessum orðum. Í skólanum er unnið samkvæmt SMT-skólafærni sem þýðir að áhersla er lögð á að nálgast nemendur á jákvæðan hátt, gefa góðri hegðun meiri gaum og skapa þannig jákvæðan skólabrag. Hvaleyrarskóli er jafnframt heilsueflandi grunnskóli og vinnur eftir Olweusaráætluninni gegn einelti. Hvaleyrarskóli er skóli margbreytileikans þar sem lögð er rækt við fjölmenningu.

Skólinn vinnur samkvæmt hugmyndafræði SMT, Olweus, markvissar málörvunar og byrjendalæsis ásamt áherslu á skák- og sviðslistir/danskennslu.

Nánari upplýsingar um skólann má einnig finna á heimasíðunni http://www.hvaleyrarskoli.is.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Annast kennslu í stærðfræði á unglingastigi í samvinnu við skólastjórnendur, umsjónarkennara og foreldra
  • Vinna að þróun skólastarfs í samstarfi við stjórnendur og samstarfsfólk með áherslu á teymisvinnu
  • Stuðla að velferð nemenda í samstarfi við foreldra og annað fagfólk
  • Vinna samkvæmt stefnu skólans í SMT skólafærni sem ætlað er að skapa gott andrúmsloft í skólum og tryggja öryggi og velferð nemenda og starfsfólks
  • Önnur verkefni samkvæmt starfslýsingu

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Leyfisbréf til kennslu (Leyfisbréf fylgi umsókn)
  • Kennslureynsla í grunnskóla skilyrði
  • Kennslureynsla og þekking á fjölbreyttum kennsluaðferðum á elsta stigi æskilega
  • Frumkvæði og skipulögð vinnubrögð
  • Jákvæðni og áhugi á að starfa í skapandi og metnaðarfullu umhverfi og vera opinn fyrir fjölbreyttum kennsluháttum.
  • Mjög góð íslensku- og stærðfræðikunnátta
  • Lipurð og jákvæðni í samskiptum og sveigjanleiki í starfi
  • Víðtæk tölvukunnátta og góð þekking á G-suite og Mentor
  • Áhugi á teymiskennslu og þverfaglegu samstarfi

Gerð er krafa um hreint sakavottorð við ráðningu.

Nánari upplýsingar um starfið veita Kristinn Guðlaugsson, skólastjóri, [email protected] í síma 664 5833 eða Vala Stefánsdóttir, aðstoðarskólastjóri, [email protected] í síma 868 6859. Sími skólans er 565 0200.

Umsóknarfrestur er til og með 20. nóvember. Ráðið er í stöðuna sem fyrst.

Greinagóð ferilsskrá fylgi umsókn.

Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og KÍ.

Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins.

Auglýsing birt6. nóvember 2025
Umsóknarfrestur20. nóvember 2025
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Akurholt 1, 220 Hafnarfjörður
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar