Þroskaþjálfi
Víkurskóli, Vík í Mýrdal, óskar eftir að ráða þroskaþjálfa eða einstakling með sambærilega menntun í 80-100% starf skólaárið 2024-2025.
Helstu verkefni og ábyrgð:
· Utanumhald með þjálfun, skráningu, og endurmati nemenda
· Vinna við einstaklingsnámskrár og námsmat
· Samstarf við fagaðila innan sem utan skólans og foreldra/forráðamenn
· Önnur tilfallandi verkefni
Menntunar- og hæfniskröfur:
· Menntun sem nýtist í starfi, s.s. þroskaþjálfa-, atferlisþjálfunarmenntun, kennaramenntun eða önnur sambærileg menntun
· Reynsla af sambærilegu starfi er kostur
· Áhugi á að starfa með börnum og ungmennum
· Framúrskarandi samskipta- og samstarfshæfni
· Frumkvæði, jákvæðni og sveigjanleiki
· Góð íslenskukunnátta í ræðu og riti