Fjarðabyggð
Fjarðabyggð
Fjarðabyggð

Deildarstjóri á leikskóla Breiðdals- og Stöðvarfjarðarskóla

Leikskóli Breiðdals- og Stöðvarfjarðarskóla óskar eftir deildarstjóra sem er reiðubúinn að ganga til liðs við lítinn samhentan hóp starfsfólks sem innir af hendi skemmtilegt og krefjandi starf með nemendum leikskólans. Við viljum búa börnum öruggt umhverfi þar sem þau fá svigrúm til að vaxa og þroskast. Í Breiðdals-og Stöðvarfjarðarskóla er góður starfsandi sem einkennist af jákvæðni og gleði.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Vinnur með og undir stjórn leikskólastjóra
  • Er hluti af stjórnunarteymi leikskólans
  • Ber ábyrgð á stjórnun og skipulagningu starfsins á deildinni
  • Sér um foreldrasamstarf á deildinni
  • Vinnur að uppeldi og menntun leikskólabarna samkvæmt starfslýsingu deildarstjóra
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Leyfisbréf til kennslu, starfsreynsla er æskileg
  • Samskipta og samstarfshæfni
  • Frumkvæði og faglegur metnaður
  • Ábyrgð í starfi og stundvísi
  • Skipulagshæfileikar
  • Reiðubúin/n að takast á við nýjungar
Fríðindi í starfi
  • Vinnutímastytting
  • Íþrótta- og tómstundarstyrkur
Auglýsing birt14. október 2024
Umsóknarfrestur1. nóvember 2024
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenskaMjög góð
Staðsetning
Hafnargata 2, 730 Reyðarfjörður
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar