Vallaskóli, Selfossi
Vallaskóli, Selfossi
Vallaskóli, Selfossi

Þroskaþjálfar

Óskað er eftir þroskaþjálfum í 100% starf. Þroskaþjálfi veitir leiðsögn og ráðgjöf til foreldra, kennara og annarra starfsmanna ásamt því að þjálfa og styðja við nám nemenda er þurfa á sértækum stuðningi að halda.

Í Sveitarfélaginu Árborg búa rúmlega 12.000 íbúar og starfa um 1000 manns hjá sveitarfélaginu. Lögð er áhersla á að skapa starfsumhverfi sem stuðlar að vellíðan og árangri þar sem starfað er af fagmennsku og góðum ásetningi með hag sveitarfélagsins að leiðarljósi.

Vallaskóli er tæplega 550 nemenda skóli í hjarta Selfoss. Sérstaða skólans er m.a. smiðjukennsla á unglingastigi, öflugt list og verkgreinastarf og við skólann er fjölmenningardeild. Í skólanum er lögð áhersla á sveigjanlega og fjölbreytta kennsluhætti, jákvæðan aga, einstaklingsmiðað nám, teymisvinnu kennara, ábyrgð nemenda og góða samvinnu allra sem að skólastarfinu koma.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Þroskaþjálfi vinnur í nánu samstarfi við starfsfólk skólans og foreldra/forráðamenn nemenda í samráði við deildarstjóra. Tekur þátt í samstarfi við ýmsar stofnanir og sérfræðinga sem tengjast skólanum í samráði við deildarstjóra
  • Vinnur að áætlanagerðum, þ.m.t. skólanámskrá, bekkjaráætlunum og einstaklingsáætlunum í samráði/samstarfi við kennara, stuðningsfulltrúa, foreldra og aðra eftir því sem við á
  • Gerir færni-, þroska- og námsmat í samráði/samstarfi við kennara, stuðningsfulltrúa, foreldra og aðra eftir því sem við á
  • Skipuleggur þjálfunaraðstæður, velur/útbýr þjálfunar- og námsgögn og fylgir eftir settum markmiðum. Metur árangur og endurskoðar markmið í samstarfi við samstarfsaðila.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Gerð er krafa um háskólamenntun á sviði þroskaþjálfunar og starfsleyfi til að starfa sem slíkur
  • Frumkvæði, skipulagshæfileikar og sjálfstæð vinnubrögð
  • Hæfni og áhugi á skólastarfi
  • Færni í mannlegum samskiptum
  • Hæfni til að tjá sig í ræðu og riti á íslensku
Auglýsing birt27. mars 2025
Umsóknarfrestur8. apríl 2025
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Sólvellir 2, 800 Selfoss
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.Skipulag
Starfsgreinar
Starfsmerkingar