

Skýjaborg auglýsir eftir þroskaþjálfa í 100% starf
Leikskólinn Skýjaborg óskar eftir að ráða þroskaþjálfa í 100% ótímabundna stöðu frá 5. ágúst 2025 eða eftir samkomulagi.
Skýjaborg er tveggja deilda leikskóli í Melahverfi, Hvalfjarðarsveit með allt að 40 börn. Í Skýjaborg er lögð áhersla á umhverfismennt, útinám, snemmtæki íhlutun í máli og læsi og sjálfsprottinn leik. Skólinn er grænfánaskóli og gildi skólans eru: Vellíðan, virðing, metnaður og samvinna.
Í Skýjaborg gefst tækifæri til að takast á við fjölbreytt og skemmtileg verkefni sem tengjast þróun leikskólastarfs, samvinnu við Heiðarskóla og fleiri stofnanir.
Heimasíða leikskólans er: https://skoli.hvalfjardarsveit.is/
· Vinnur að uppeldi og menntun barnanna.
· Veitir börnum sem þurfa á sérkennslu að halda sérstaka aðstoð og kennslu.
· Vinnur í nánu samstarfi við foreldra/forráðamenn barna sem njóta sérkennslu, fagaðila og aðra ráðgjafa og situr fundi og viðtöl með þeim.
· Sinnir þeim verkefnum er varða sérkennslu, uppeldi og menntun barnanna sem yfirmaður felur honum.
· Starfar í sérkennsluteymi leikskólans.
· Starfsleyfi sem þroskaþjálfi*
· Reynsla af vinnu með börnum
· Reynsla af skipulagningu sérkennslu og þjálfunar
· Góð íslenskukunnátta
· Góð samskiptahæfni
· Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
*Ef ekki fæst þroskaþjálfi verður horft til menntunar og reynslu.
· 35 klst. vinnuvika / 7 klst. vinnudagur. Afleysing er í húsi fyrir styttingunni.
· Opnunartími leikskólans er 7:30-16:30.
· 6 skipulagsdagar á ári.
· Veittur er styrkur til náms í leikskólakennaranámi.












