Vallaskóli, Selfossi
Vallaskóli, Selfossi
Vallaskóli, Selfossi

Umsjónar- og faggreinakennarastöður

Auglýst er eftir umsjónarkennurum í 100% stöðu umsjónarkennara við Vallaskóla frá 1. ágúst 2025. Um er að ræða stöður á yngsta-, mið- og unglingastigi.

Í Sveitarfélaginu Árborg búa rúmlega 12.000 íbúar og starfa um 1000 manns hjá sveitarfélaginu. Lögð er áhersla á að skapa starfsumhverfi sem stuðlar að vellíðan og árangri þar sem starfað er af fagmennsku og góðum ásetningi með hag sveitarfélagsins að leiðarljósi.

Vallaskóli er tæplega 550 nemenda skóli í hjarta Selfoss. Sérstaða skólans er m.a. smiðjukennsla á unglingastigi, öflugt list og verkgreinastarf og við skólann er fjölmenningardeild. Í skólanum er lögð áhersla á sveigjanlega og fjölbreytta kennsluhætti, jákvæðan aga, einstaklingsmiðað nám, teymisvinnu kennara, ábyrgð nemenda og góða samvinnu allra sem að skólastarfinu koma.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Annast kennslu samkvæmt meginmarkmiðum Aðalnámskrá grunnskóla með hliðsjón af þörfum og þroska nemenda
  • Umsjón með daglegu skólastarfi og viðkomandi nemendahópum
  • Samskipti á vegum skólans og við foreldra/forráðamenn
  • Fylgist með velferð nemenda og hlúir að þeim í samstarfi við fagaðila eftir þörfum
  • Tekur þátt í skólaþróun í samræmi við stefnu skólans og sveitarfélagsins
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Leyfisbréf kennara
  • Frumkvæði, skipulagshæfileikar og sjálfstæð vinnubrögð
  • Hæfni og áhugi á skólastarfi
  • Góð færni í mannlegum samskiptum
  • Hæfni til að tjá sig í ræðu og riti á íslensku
  • Áhugi á skólaþróun og skapandi kennsluháttum mikilvægur
Auglýsing birt27. mars 2025
Umsóknarfrestur8. apríl 2025
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Sólvellir 2, 800 Selfoss
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.Skipulag
Starfsgreinar
Starfsmerkingar