Bílaumboðið Askja
Bílaumboðið Askja
Bílaumboðið Askja

Þjónusturáðgjafi Kia og Honda

Við leitum að þjónustulunduðum og ábyrgum aðila til að sinna móttöku og ráðgjöf viðskiptavina fólksbílaverkstæðis Kia og Honda. Við bjóðum einstakt tækifæri til að takast á við fjölbreytt og krefjandi verkefni í lifandi umhverfi.

Menntunar- og hæfniskröfur
Reynsla af þjónustustörfum æskileg
Samstarfs- og samskiptahæfni og rík þjónustulund
Áhugi og þekking á bílum kostur
Frumkvæði, sjálfstæði og nákvæmni í vinnubrögðum
Fagleg framkoma, snyrtimennska og stundvísi
Góð íslensku- og enskukunnátta í ræðu og riti
Gild ökuréttindi
Helstu verkefni og ábyrgð
Móttaka viðskiptavina og ráðgjöf til þeirra
Móttaka bókana fyrir þjónustu og viðgerðir
Tilboðsgerð og reikningagerð fyrir verkstæði
Uppfletting og afgreiðsla varahluta
Svara fyrirspurnum og erindum sem berast
Auglýsing birt21. júlí 2022
Umsóknarfrestur9. ágúst 2022
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Krókháls 13, 113 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar