Bílaumboðið Askja
Bílaumboðið Askja
Bílaumboðið Askja

Þjónusturáðgjafi í varahlutadeild

Við leitum að þjónustuliprum aðila með mikla þekkingu á bílum til að sinna sölu og afgreiðslu varahluta fyrir Mercedes-Benz, Kia, Honda og smart sem Askja er sölu- og þjónustuaðili fyrir. Um er að ræða fjölbreytt framtíðarstarf þar sem reynir á samskiptahæfni og þjónustulund.

Helstu verkefni og ábyrgð

Afgreiðsla varahluta í framlínu og þjónustuveri varahlutaverslunar 
Úrvinnsla fyrirspurna í gegnum síma, tölvupóst og aðra netmiðla 
Afgreiðsla varahluta innanhúss
Frágangur pantana og móttaka á vörum frá birgjum

Við leitum að liðsfélaga með:

Samstarfs- og samskiptahæfni og ríka þjónustulund
Frumkvæði, sjálfstæði og nákvæmni í vinnubrögðum
Reynsla af þjónustustörfum æskileg
Áhugi og þekking á bílum
Sveinspróf í bifvélavirkjun kostur
Reynsla af Navision kostur
Góða íslensku- og enskukunnátta í ræðu og riti 

Af hverju Askja?

Samvinna og sveigjanleiki
Fjölskylduvænn vinnustaður
Markviss starfsþróun
Öflugt fræðslustarf
Frábært félagslíf
Samkeppnishæf kjör

Auglýsing birt10. desember 2024
Umsóknarfrestur17. desember 2024
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Krókháls 11, 113 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.Þjónustulund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar