Arion banki
Arion banki
Arion banki

Þjónusturáðgjafar á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri

Við í þjónustuveri Arion banka leitum að öflugum og jákvæðum þjónusturáðgjöfum. Leitað er eftir söludrifnum einstaklingum sem hafa ánægju af því að veita framúrskarandi bankaþjónustu og vilja starfa sem hluti af góðri liðsheild. Þá skiptir okkur máli að finna kraftmikla einstaklinga sem eru tilbúnir að koma sér vel inn í agað og árangursdrifið vinnuumhverfi. Með frumkvæði, samvinnu og skipulagi getum við veitt okkar viðskiptavinum framúrskarandi þjónustu.

Í boði eru stöður í þjónustuverinu okkar í Smáraútibúi og í útibúinu okkar á Glerártorgi, Akureyri.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Að veita viðskiptavinum framúrskarandi þjónustu, upplýsingar og faglega ráðgjöf í gegnum tölvupóst, síma og netspjall.
  • Að aðstoða viðskiptavini við að skilja fjármál betur og læra á nýjungar
  • Að framfylgja þjónustu- og sölustefnu bankans hverju sinni
  • Ýmis önnur verkefni í samráði við yfirmann 
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Framúrskarandi þjónustulund og samskiptahæfni
  • Frumkvæði og söludrifni
  • Nákvæm vinnubrögð og skipulagshæfni
  • Góð tölvukunnátta og áhugi á stafrænum lausnum
  • Góð íslensku og ensku kunnátta í töluðu og rituðu máli. Önnur tungumálakunnátta er kostur. 
  • Menntun og/eða starfsreynsla sem nýtist í starfi
Auglýsing birt6. ágúst 2025
Umsóknarfrestur20. ágúst 2025
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Borgartún 19, 105 Reykjavík
Gleráreyrar 1, 600 Akureyri
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.Samskipti í símaPathCreated with Sketch.Samskipti með tölvupóstiPathCreated with Sketch.Þjónustulund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar