

Þjónustufulltrúi á ferðinni
Við leitum að drífandi einstaklingi sem hefur brennandi áhuga á öllu sem tengist tækni og þjónustu.
Starfið felur í sér heimsóknir til viðskiptavina okkar, þjónustu við uppsetningu, úttektir og eftirlit á öryggiskerfum.
Ef þú...
- Býrð yfir mikilli þjónustulund og hæfni í mannlegum samskiptum
- Hefur metnað og frumkvæði til að takast á við krefjandi verkefni
- Hefur áhuga á tæknibúnaði
- Býrð yfir íslenskukunnáttu, bæði í rituðu og töluðu máli
....Þá erum við að leita að þér!
Menntun eða reynsla sem nýtist í starfi er kostur en ekki skilyrði. Securitas leggur mikla áherslu á kennslu og þjálfun fyrir allt starfsfólk, sem og þróun í starfi.
Í boði er fullt starf þar sem er unnið alla virka daga frá kl. 08:00 til 16:00. Starfið hentar öllum kynjum með hreint sakavottorð og gilt ökuskírteini.
Umsóknarfrestur er til og með 4. desember næstkomandi. Farið verður með allar umsóknir sem trúnaðarmál og er öllum umsóknum svarað.
Frekari upplýsingar um starfið veitir Ólafur Friðrik Sigvaldsson, deildarstjóri einstaklingsþjonustu, í síma 580-7000











