Borgarleikhúsið
Borgarleikhúsið
Borgarleikhúsið

Klæðskeri / kjólameistari

Borgarleikhúsið leitar að klæðskera eða kjólameistara með sem býr yfir reynslu og þekkingu af sníðagerð. Um er að ræða starf í búningadeild Borgarleikhússins sem felur í sér búningagerð fyrir allar leiksýningar Borgarleikhússins, þ.e. sníðagerð, grunnsaum, litun og fleira. Viðkomandi hefur jafnframt umsjón með viðhaldi búninga og útleigu þeirra, auk umhirðu og viðhaldi tækjabúnaðar í búningadeild.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Að búningagerð leikhússins sé til fyrirmyndar.
  • Að sinna þörfum og óskum listrænna stjórnenda við vinnslu sýninga, þannig að ánægja sé með störf deildarinnar og að árangurinn sé leikhúsinu til sóma. 
  • Að vinnubrögð séu öguð, nákvæm og metnaður ríki meðal starfsfólks.
  • Að viðhalda jákvæðum starfsanda og samskiptum við aðrar deildir.
  • Að rekstur deildar sé til fyrirmyndar hvað varðar aðstöðu, umgengni og skipulag.
  • Að geta forgangsraðað og skipulagt eigin störf í krefjandi aðstæðum og sýnt fagmennsku í starfi.
  • Að geta unnið sjálfstætt, hafa jákvætt viðmót, drifkraft og metnað til að ná árangri í starfi.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Viðkomandi þarf að hafa lokið að lágmarki 3ja ára sérhæfðu fagnámi sem nýtist í starfi og/eða búa yfir fagþekkingu og reynslu í faginu.
  • Reynsla af sníðagerð er nauðsynleg.
  • Reynsla af sambærilegu starfi er kostur.

Auglýsing birt15. september 2026
Umsóknarfrestur12. október 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
EnskaEnska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Listabraut 3, 103 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.LeiðtogahæfniPathCreated with Sketch.SkipulagPathCreated with Sketch.SveigjanleikiPathCreated with Sketch.VaktaskipulagPathCreated with Sketch.Vinna undir álagiPathCreated with Sketch.Viðburðastjórnun
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar