Heilsa
Heilsa
Heilsa

Þjónustufulltrúi

Heilsa leitar að þjónustulunduðum aðila í starf þjónustufulltrúa. Þjónustufulltrúi ber ábyrgð á fjölbreyttum verkefnum sem tengjast þjónustu við viðskiptavini og daglegum rekstri skrifstofu Heilsu. Þjónustufulltrúi vinnur með öllum einingum fyrirtækisins og gegnir lykilhlutverki í að tryggja skilvirk samskipti, faglega afgreiðslu og hámarks ánægju viðskiptavina.

Helstu verkefni:

  • Símsvörun, tölvupóstsamskipti og önnur almenn skrifstofustörf
  • Móttaka pantana og aðstoð við viðskiptavini
  • Umsýsla pantana til innlendra aðila
  • Fagleg ráðgjöf og afgreiðsla fyrirspurna
  • Reikningagerð og skráning í bókhaldskerfi
  • Uppfærsla verðskrár og vörugagna
  • Eftirfylgni og úrvinnsla fyrirspurna frá viðskiptavinum
  • Önnur tilfallandi verkefni

Hæfniskröfur:

  • Reynsla af þjónustu- og/eða skrifstofustörfum
  • Góð tölvukunnátta og færni í að vinna með gögn – þekking á bókhaldskerfum (NAV/BC) og innkaupakerfum (AGR) er kostur
  • Nákvæmni, skipulag og sjálfstæð vinnubrögð
  • Framúrskarandi samskipta- og þjónustulund
  • Gott vald á íslensku og ensku í rituðu og töluðu máli
  • Áhugi á heilbrigði og vellíðan

VIÐ BJÓÐUM

  • Faglegt og vaxandi starfsumhverfi þar sem áhersla er á nákvæmni og gæði
  • Tækifæri til að hafa áhrif á rekstur og hagkvæmni í innkaupakeðjunni
  • Starf á glænýrri skrifstofu Heilsu ehf. að Skarfagörðum 2, 104 Reykjavík
  • Vinnutími: Virkir dagar, 100% starf
  • Aðgangur að velferðarþjónustu og styrkur til heilsueflingar
  • Afsláttarkjör hjá Lyfju, Krónunni, N1 og ELKO

Nánari upplýsingar um starfið veitir Maria Del Pilar Acosta Gomez, innkaupastjóri Heilsu [email protected].

Farið verður með allar umsóknir og fyrirspurnir sem trúnaðarmál.

Auglýsing birt7. ágúst 2025
Umsóknarfrestur17. ágúst 2025
Tungumálahæfni
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Bæjarflöt 1-3 1R, 112 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar