KAPP ehf
KAPP ehf
KAPP ehf

Tæknimaður - Rafvirki

KAPP óskar eftir að ráða til framtíðarstarfa rafiðnfræðing eða rafvirkja á þjónustusvið félagsins. Um er að ræða fjölbreytt og áhugavert starf við fyrsta flokks vinnuaðstæður í nýjum höfuðstöðvum KAPP í Kópavogi. KAPP er tæknifyrirtæki sem sérhæfir sig í kæliþjónustu, vélasmíði, innflutningi og þjónustu á tækjabúnaði fyrir sjávarútveg, fiskeldi og annan iðnað. KAPP framleiðir OptimICE® krapakerfi, forkæla og RAF sprautuvélarkerfi. Félagið rekur öflugt renni-, stál-, véla-, rafmagns- og kæliverkstæði.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Vinna við framleiðslu, uppsetningu og þjónustu á vörum félagsins
  • Iðnstýringar og skjákerfi; hönnun, forritun, þjónusta
  • Fjarþjónusta við viðskiptavini
  • Ósonkerfi; þjónusta og uppsetning
  • Þrýstiloftskerfi; þjónusta og uppsetning
  • Súrefnisframleiðslukerfi; þjónusta og uppsetning
  • Bilunarleit og villuprófanir 
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Iðnmenntun eða önnur menntun sem nýtist í starfi, sveinspróf er æskilegt
  • Geta til þess að ferðast innanlands sem og erlendis
  • Þekking og reynsla af viðhaldsþjónustu og uppsetningum á vélakerfum og kælibúnaði
  • Góð þjónustulund og jákvæðni
  • Frumkvæði og geta til að vinna sjálfstætt
  • Góð íslensku- og enskukunnátta
  • Geta unnið undir álagi eða reynsla af fjölbreyttu starfi kostur
Auglýsing birt14. október 2024
Umsóknarfrestur27. október 2024
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenskaFramúrskarandi
EnskaEnskaMjög góð
Staðsetning
Turnahvarf 8, 203 Kópavogur
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.Rafvirkjun
Starfsgreinar
Starfsmerkingar