
Steypustöðin
Steypustöðin var stofnuð árið 1947 og eru aðalstöðvar félagsins á Malarhöfða 10 Reykjavík.
Steypustöðin er með útibú á nokkrum stöðum eins og Hafnarfirði, Selfossi, Helguvík, Borgarnesi og Þorlákshöfn ásamt tveimur færanlegum Steypustöðvum.
Eins og nafnið gefur kynna til er meginstarfssemi félagsins framleiðsla og afhending á steypu. Félagið rekur einnig helluverksmiðju, flotbíla fyrir flotmúr, múrverslun, efnisvinnslu og stærstu einingaverksmiðju landsins í Borgarnesi.
Hjá félaginu starfa nú um 300 starfsmenn

Tæknimaður í tæknideild
Einningarverksmiðja Steypustöðvarinnar í Borgarnesi óskar eftir metnaðarfullum og sterkum einstakling í tæknideild í fullt starf. Ef þú hefur brennandi áhuga á byggingarteikningum og vinnur vel í hóp, þá gæti þetta mögulega verið rétta starfið fyrir þig.
Steypustöðin í Borgarnesi er framleiðslufyrirtæki sem framleiðir byggingarhluti úr forsteyptum einingum. Framleiðslan er í Borgarnesi en sölu- og hönnunarskrifstofa er einnig í Reykjavík. Starfsstöð getur verið í Borgarnesi og/eða í Reykjavík.
Við hvetjum öll kyn og þjóðerni til að sækja um. Um framtíðarstarf er að ræða.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Yfirferð og teiknun teikninga með því markmiði að gera þær tilbúnar fyrir framleiðslu
- Setja upp einingateikningar frá utanaðkomandi hönnuðum fyrir einingaframleiðslu.
- Rýni teikninga
- Vinna að áætlanagerð í framleiðslu
- Magntaka
- Uppsetning framleiðsluskjala
- Önnur tilfallandi störf í samstarfi við yfirmann
Menntunar- og hæfniskröfur
- Menntun í tæknifræði, byggingarfræði, iðnfræði eða sambærilegt.
- Reynsla af vinnu með teikningar.
- Kunnátta í Revit, AutoCad og Impact
- Frumkvæði og faglegur metnaður
- Góð samskiptahæfni
- Þekking á og/eða áhugi á teikningum
- Eftirfylgni og nákvæmni í vinnubrögðum
Fríðindi í starfi
- Hádegismatur
- Fjölbreytt og krefjandi verkefni
- Námskeið og fræðsla
- Líkamsræktarstyrkur
- Jákvætt og hvetjandi vinnuumhverfi
Auglýsing birt8. maí 2025
UmsóknarfresturEnginn
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Engjaás 1, 310 Borgarnes
Malarhöfði 10, 110 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
AutoCadByggingafræðingurFrumkvæðiMannleg samskiptiMetnaðurTeikning
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (4)
Sambærileg störf (12)

Verkefnastjóri; Úttektir, eftirlit og ráðgjöf
VERKVIST

Starfsmaður í Garðskáladeild
Jón Bergsson

Verkefnastjóri með skráningu fasteigna
Kópavogsbær

Tækniteiknari - Umhverfis- og skipulagssvið
Hafnarfjarðarbær

Fasteignaumsjón
Veritas

Vatnsaflsvirkjanahönnuður á Akureyri
COWI

Sérfræðingur í rannsóknum og gerð Rb blaða
Húsnæðis- og mannvirkjastofnun (HMS)

Sérfræðingur – Askur, mannvirkjarannsóknarsjóður HMS
Húsnæðis- og mannvirkjastofnun (HMS)

Tækniteiknari
COWI

Skipulagsfulltrúi
Umhverfis- og tæknisvið Uppsveita

Ráðgjafi kerfisbundins frágangs
NORCOM - Nordic Commissioning ehf.

Verkefnastjóri
Ístak hf