Vodafone
Vodafone
Vodafone

Tæknimaður

Ert þú tæknimaður sem elskar ferðalög, útivist og ert laus við lofthræðslu? Þá gætum við verið með spennandi starf fyrir þig! Radíókerfi Vodafone óska eftir að ráða rafeindavirkja til að vinna við útvarps, sjónvarps, farnets- og örbylgjubúnað Vodafone vítt og breitt um landið. Vodafone á og rekur eitt stærsta fjarskiptakerfi landsins og hjá okkur starfa margir helstu sérfræðingar landsins á sviði fjarskipta. Viðkomandi mun verða hluti af öflugu teymi og sinna mikilvægum verkefnum við rekstur fjarskiptakerfisins. Starfsmaður þarf að vinna bakvaktir.

Hæfniskröfur

  • Menntun á sviði rafeindavirkjunar, rafvirkjunar eða önnur sambærileg menntun
  • Reynsla af rekstri FM, UHF, eða annarra radíókerfa.
  • Þekking á IP flutningi kostur.
  • Vilji og geta til að vinna í hæð
  • Góðir samskiptahæfileikar og geta til að vinna vel í hóp.
  • Jákvæðni og drifkraftur.
  • Reynsla af ferðalögum á hálendinu kostur.
  • Bílpróf.

Hvað höfum við að bjóða þér?

  • Frábæra vinnufélaga
  • Framúrskarandi vinnuaðstöðu
  • Spennandi verkefni
  • Sveigjanlegt og fjölskylduvænt vinnuumhverfi
  • Möguleika á starfsþróun
  • Mötuneyti á heimsmælikvarða
  • Internet- og farsímaáskrift auk sérkjara af sjónvarpsþjónustu
  • Árlegan heilsustyrk
  • Árlegan símtækjastyrk
  • Samgöngustyrk fyrir þá sem nýta sér vistvæna ferðamáta til og frá vinnu
  • Öflugt starfsmannafélag og frábæra vinnustaðamenningu

Umsóknarfrestur er til og með 24 október nk. Við hvetjum fólk af öllum kynjum til að sækja um.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Sigurbjörn Óskar Guðmundsson, deildarstjóri, sigurbjorng@vodafone.is

Einungis er tekið á móti umsóknum í gegnum ráðningarvefinn okkar.

Hver erum við?

Sýn er leiðandi fyrirtæki á sviði fjarskipta og fjölmiðlunar á Íslandi. Undir Sýn heyra vörumerkin Vodafone, Stöð 2, Vísir, Bylgjan, FM957, X-977, Stöð 2 Sport og dótturfélagið Endor. Hjá okkur starfar samheldinn hópur fólks sem leitast stöðugt við að veita viðskiptavinum okkar framúrskarandi þjónustu.

Hjá Sýn leggjum við áherslu á að starfsfólk upplifi vellíðan í vinnu. Það gerum við með því að búa starfsfólki framúrskarandi vinnuaðstöðu, huga að líkamlegri og andlegri heilsu þess og gefa því möguleika á sveigjanleika í vinnu. Við viljum að fólki líði vel í vinnunni, upplifi sig sem hluta af sterkri liðsheild, fái útrás fyrir sköpunarþörf sína og tækifæri til að takast á við verkefni þar sem styrkleikar þeirra fá helst notið sín. Sýn vill þannig stuðla að jákvæðri sjálfsmynd og góðu sjálfstrausti starfsfólks og að starfsfólk sýni frumkvæði í starfi. Við trúum því að fyrirtækinu gangi best þegar starfsfólkið er upp á sitt BESTA.

Auglýsing birt16. október 2024
Umsóknarfrestur24. október 2024
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenskaMjög góð
EnskaEnskaMjög góð
Staðsetning
Suðurlandsbraut 8, 108 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar