
PwC
Hjá PwC á Íslandi starfa um 120 manns, flestir með menntun í viðskipta- og rekstrarfræðum og/eða löggiltir endurskoðendur. Við leggjum áherslu á að starfsfólk okkar fái tækifæri til að sérhæfa sig á sínu áhugasviði innan síns tiltekna fags.
Hjá PwC á alþjóðavísu starfa u.þ.b. 370.000 manns.

Sviðsstjóri Bókhalds & launa
PwC leitar að sviðsstjóra til að bera faglega og rekstrarlega ábyrgð á sviði Bókhalds & launa í Reykjavík.
Bókhald & laun er eitt af megin starfssviðum PwC og telur 10 starfsmenn í Reykjavík. Verkefni sviðsins eru færsla bókhalds, launavinnsla, uppgjörsvinna, vsk skil og skattskil.
Viðkomandi mun bera ábyrgð á daglegri starfsemi og stýringu sviðsins, sem og rekstri þess. Einnig mun sviðsstjóri sinna bókhaldsstörfum og tengd verkefni fyrir viðskiptavini PwC.
Sviðsstjóri heyrir beint undir forstjóra.
Menntunar- og hæfniskröfur
Umfangsmikil þekking og reynsla af færslu bókhalds, uppgjörum, launavinnslu, skatt- og vsk skilum
Fyrri reynsla af stjórnunarstörfum og sterkir leiðtogahæfileikar
Menntun á sviði fjármála, viðskiptafræði eða tengdum fögum sem nýtist í starfi
Gott vald á íslensku og ensku
Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
Nákvæmni og gott auga fyrir smáatriðum
Sterk samskiptahæfni
Jákvætt viðhorf og lausnamiðað hugarfar.
Helstu verkefni og ábyrgð
Ábyrgð á daglegri starfsemi, rekstri sviðsins og dreifingu verkefna
Innleiðing og eftirfylgni með vinnuferlum og gæðastöðlum félagsins
Yfirumsjón með þróun og nýsköpun þjónustuþátta innan sviðsins, leitar að og þróar ný tækifæri til að styrkja reksturinn og langtímahagsmuni félagsins
Sinnir nauðsynlegum tengslum við alþjóðastarf PwC á sínu sérsviði
Samvinna og samráð við sviðsstjóra annarra sviða og aðra stjórnendur innan félagsins
Þátttaka í markaðssetningu viðkomandi sviðs og frumkvæði í sölu verkefna
Aðkoma að málefnum starfsmanna í samvinnu við mannauðsstjóra, þ.m.t. ráðningar, launamál og endurmenntun teymisins
Bókhaldsstörf og tengd verkefni fyrir viðskiptavini PwC. Megináhersla er á bókhald, þátttöku í uppgjörum, launavinnslu og önnur verkefni þar sem beita þarf aðferðafræði PwC.
Auglýsing birt6. janúar 2022
Umsóknarfrestur23. janúar 2022
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Skógarhlíð 12, 105 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (11)

Sérfræðingur í bókhaldi hjá ECIT á Blönduósi.
ECIT

Sviðsstjóri umhverfis- og eignasviðs Ísafjarðarbæjar
Ísafjarðarbær

Forstöðumaður umferðardeildar
Vegagerðin

Viltu stýra rekstri rafveitu Veitna?
Veitur

Þjálfari verslana og vörusölu
Nova

Fjármálastjóri
GoPro

Bókhald / Fjármál
Mögnum

Deildarstjóri/-stýra eignastýringar og viðhaldsáætlana hjá Veitum
Veitur

Hjúkrunardeildarstjóri á geðgjörgæslu
Landspítali

Forstöðumaður vöruvals og innkaupa
Vínbúðin

Framkvæmdastjóri – Vínbúðir og þjónusta
Vínbúðin