Byko
Byko
Byko

Svæðisstjóri

Við leitum að öflugum og metnaðarfullum leiðtoga til liðs við okkur til að ganga til liðs við frábæran hóp svæðisstjóra í BYKO Breidd.

Svæðisstjóri starfar náið með verslunarstjóra, öðrum svæðisstjórum og sölustjóra.

Svæðistjóri leiðir hóp sölu- og afgreiðslumanna og ber ábyrgð á vöruframsetningu og útlit deilda sem undir hann heyra.

Svæðisstjóri er leiðtogi hópsins og sér um daglega stjórnun, birgðastöðu, tilboðsgerð til viðskiptavina auk ráðgjafar og sölu.

Vinnutími er almennt átta tímar alla virka daga á opnunartíma verslunar (8-16/10-18) ásamt einni helgi á mánuði, alls 167,94 klst á mánuði.

Við leitum að einstaklingi með:

  • Menntun og/eða reynslu sem gagnast í starfi, kostur
  • Áhuga á verslun og þjónustu
  • Stjórnendareynslu, skilyrði
  • Almenna þekkingu á vörum BYKO
  • Frammúrskarandi þjónustulund
  • Metnað til að ná langt og vilja þróast og þroskast í starfi.

Helstu verkefni:

  • Dagleg stýring deilda
  • Vöruframsetning
  • Ábyrgð á útlit og vöruframsetningu innan deilda
  • Ábyrgð á birgðastöðu deilda
  • Ráðgjöf og sala

Allar nánari upplýsingar veitir Íris Sigtryggsdóttir, rekstrarstjóri ([email protected])

Auglýsing birt17. nóvember 2021
Umsóknarfrestur28. nóvember 2021
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Skemmuvegur 2A, 200 Kópavogur
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar