

Verslunarstarf - Penninn Eymundsson Hallarmúli
Við leitum að áreiðanlegum, skipulögðum og þjónustuliprum einstaklingi sem hefur gaman af því að vinna með fólki. Starfsmaðurinn verður mikilvægur hluti af daglegum rekstri verslunarinnar og þeirri þjónustu sem við veitum viðskiptavinum okkar. Hann þarf að taka vel á móti viðskiptavinum og aðstoða þá við að finna réttu vörurnar, sér til þess að verslunin sé snyrtileg og vel skipulögð. Hann vinnur með fjölbreytt vöruúrval, en með sérstaka áherslu á bækur, ritföng, ferðatöskur, ferðavörur og leikföng.
Ef þú hefur ánægju af því að aðstoða fólk og veita góða þjónustu er starfið fyrir þig. Gott er að vera skipulagður og sjálfstæður í vinnubrögðum, sýna frumkvæði í starfi, vera forvitinn og tilbúinn að læra og tileinka sér ný vinnubrögð. Starfið felur líka í sér að höndla með vörur, lyfta og bera kassa sem geta vegið allt að 20kg.
Vinnutími 08:00-16:00 virka daga.
- Afgreiðsla og áfyllingar
- Þekking og áhugi á bókum
- Þjónustulund og sjálfstæði í starfi
- Hæfni í mannlegum samskiptum
- Þekking á Business Central mikill kostur
- Stundvísi og áreiðanleiki
- Íslenska: nauðsynleg
- Enska: grunnkunnátta nauðsynleg
Íslenska
Enska










