

Sumarstörf - þjónustustöðvar á Austursvæði
Ert þú að leita að fjölbreyttu og spennandi starfi þar sem þú færð að njóta útivistar? Við erum að leita að kraftmiklum og áhugasömum einstaklingum til að ganga til liðs við okkur í sumar.
Opið er fyrir umsóknir um sumarstörf á starfstöðvum á Austursvæði.
Starfsstöðvarnar eru staðsettar á Reyðarfirði, Fellabæ og Höfn.
Vinsamlegast takið fram í umsókn undir athugasemdum á hvaða starfsstöð viðkomandi sækir um.
Vinnuhópar eru starfræktir á þjónustustöðvum Vegagerðarinnar yfir sumartímann og sinna þeir almennu viðhaldi vegsvæða.
- Vinna við umferðarmerki, vegvísa, stikur, málningarvinna.
- Holuviðgerðir, ristahlið, hreinsun vegsvæðis.
- Tiltekt og viðhald í áhaldahúsi og lóð.
- Önnur tilfallandi störf er upp kunna að koma hverju sinni.
- Almenn menntun
- 18 ára eða eldri
- Almennt ökuskírteini
- Góð öryggisvitund
- Reynsla af sambærilegum störfum æskileg
- Hæfni í mannlegum samskiptum
- Frumkvæði og hæfni að vinna í hóp
- Góð kunnátta í íslensku eða ensku
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.
Vegagerðin er eftirsóknarverður vinnustaður, stærsta framkvæmdastofnun landsins með gríðarlega fjölbreytta verkefnaflóru.
Áhugasamir einstaklingar, án tillits til kyns, eru hvattir til að sækja um. Umsókn skal fylgja ferilskrá þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og upplýsingar um fyrri störf. Öllum umsóknum um starfið verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf á bilinu 15. maí-6.júní.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 10.03.2025
Nánari upplýsingar veitir
Jens Olsen Hilmarsson - [email protected] - 5221000
Gunnlaugur Rúnar Sigurðsson - [email protected] - 5221000













