Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær

Sumarstarf - Lundur

Hafnarfjarðarbær óskar eftir að ráða öflugan starfsmann í sumarstarf á heimili fyrir fatlaðan einstakling, sem staðsett er í Setberginu. Unnið er eftir hugmyndafræði Þjónandi leiðsagnar.

Um er að ræða fjölbreytt og spennandi starf, í boði er 40-90% starf. Starfið er vaktavinna þar sem unnið er dagvaktir, kvöldvaktir og helgarvaktir.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Veita íbúa stuðning við athafnir daglegs lífs
  • Fylgja eftir þjónustuáætlunum og verklagsreglum
  • Virkja íbúa til ýmissa tómstunda
  • Sinna heimilisstörfum
  • Önnur verkefni skv. starfslýsingu

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Reynsla af sambærilegum störfum kostur
  • Áhugi á málefnum fatlaðs fólks
  • Íslenskukunnátta skilyrði
  • Þjónustulund og jákvæðni í starfi
  • Hæfni í mannlegum samskiptum
  • Frumkvæði og samviskusemi

Skilyrði er að viðkomandi hafi náð 20 ára aldri og hafi hreint sakavottorð.

Frekari upplýsingar um starfið veitir Þórdís Rúriksdóttir, forstöðumaður í síma: 565-5100, netfang: [email protected]

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við Starfsmannafélag Hafnarfjarðarbæjar.

Umsóknarfrestur er til og með 8. maí 2025.

Umsókn fylgi greinargóð ferilskrá.

Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins

Auglýsing birt28. apríl 2025
Umsóknarfrestur8. maí 2025
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Strandgata 6, 220 Hafnarfjörður
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar