Tannlæknastofa Grafarvogs
Tannlæknastofa Grafarvogs

Fjölbreytt og skemmtilegt starf

Á tannlæknastofunni starfa 3 tannlæknar og 6 tanntæknar eða aðstoðarmenn.

Við erum að leita að starfsmanni í 100% vinnu.

Stofan hefur mikið af viðskiptavinum úr Grafarvogi og nágrenni. Stofan er vinsæl af foreldrum ungra barna enda er lögð mikil áhersla á aðlögun og samvinnu við börn.

Allar almennar tannlækningar eru stundaðar á tannlæknastofunni.

Starfið er fjölbreytt og gefandi. Starfið felst í samskiptum við viðskiptavini, aðstoð og vinnu við tannlæknastól, sótthreinun og þrif áhalda, símasvörun, tímabókunum, afgreiðslu, innkaup og fleira.

Teymisvinna er við tannréttingar með Invisalign skinnum.

Tannlæknastofan er bæði með Facebook og Instagramsíðu þar sem hægt er að fá innsýn í dagleg störf okkar.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Móttaka viðskiptavina, símavarsla, aðstoð og vinna við tannlæknastól, notkun á þrívíddarskanna, sótthreinsun, áfylling efna og áhalda og fleira.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Stundvísi, frumkvæði, metnaður í starfi, létt skap og vilji til að blanda geði við fólk, vera hvetjandi við börn og fullorðna.
  • Góð íslenskukunnátta er skilyrði.
  • Samkvæmt núgildandi reglum þarf starfsmaður að hafa unnið í 3 ár á tannlæknastofu til að fara í raunfærnismat og öðlast réttindi tanntækna.
Auglýsing birt25. apríl 2025
Umsóknarfrestur11. maí 2025
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Hverafold 1-3 1R, 112 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.HeiðarleikiPathCreated with Sketch.Hreint sakavottorðPathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.MetnaðurPathCreated with Sketch.Samskipti í símaPathCreated with Sketch.StundvísiPathCreated with Sketch.TeymisvinnaPathCreated with Sketch.TóbakslausPathCreated with Sketch.VandvirkniPathCreated with Sketch.Veiplaus
Starfsgreinar
Starfsmerkingar