

Kennari í hönnun og smíði - Víðistaðaskóli
Víðistaðaskóli leitar að skapandi, hugmyndaríkum og drífandi kennara í hönnun- og smíði, sem bætist í góðan hóp annarra list og verkgreinakennara sem starfa við skólann. Skólinn er vel tækjum búinn og hefur yfir góðri aðstöðu að ráða. Starfshlutfall er 100% og gert er ráð fyrir að starfsmaður hefji störf 1. ágúst 2025.
Í Víðistaðaskóla eru rúmlega 500 nemendur og um 100 starfsmenn. Við leggjum áherslu á fjölbreytileikann, líðan nemenda og fjölbreytta kennsluhætti. Gildi skólans eru ábyrgð- virðing og vinátta. Í skólanum er unnið eftir SMT skólafærni þar sem lögð er áhersla á að styrkja og efla jákvæð samskipti milli nemenda sem annarra í skólasamfélaginu. Við erum heilsueflandi grunnskóli sem hugsar um umhverfi sitt í anda Græn fánans.
Í Víðistaðaskóla er góður starfsandi og samheldni meðal þeirra sem í skólanum starfa.
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Annast kennslu í nýsköpun, list- og verkgreinum, hönnun og smíði á mið og unglingastigi
- Vinnur að þróun skólastarfs í samstarfi við stjórnendur og samstarfsfólk
- Stuðlar að velferð nemenda í samstarfi við foreldra og fagaðila
- Vinnur samkvæmt stefnu skólans
- Önnur verkefni skv. starfslýsingu og sem yfirmaður felur starfsmanni
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Leyfisbréf til kennslu (leyfisbréf fylgi umsókn)
- Haldgóð þekking á kennslufræði námsgreina
- Áhugi á að starfa með börnum og ungmennum.
- Lipurð í samskiptum, sveigjanleiki og samstarfshæfni.
- Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum.
- Jákvæðni og áhugi á að starfa í skapandi og metnaðarfullu umhverfi.
- Stundvísi og samviskusemi
- Mjög góð íslenskukunnátta
Nánari upplýsingar um starfið veitir Dagný Kristinsdóttir, skólastjóri, í síma 664-5890, [email protected]
Nánari upplýsingar um skólann má finna á heimasíðunni http://www.vidistadaskoli.is
Umsóknarfrestur er til og með 7.maí 2025
Greinargóð ferilskrá og leyfisbréf fylgi umsókn.Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og KÍ.
Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins.



































