

Stuðningsfulltrúi óskast í SkaHm þekkingarmiðstöð
SkaHm er heildstæð þjónusta fyrir börn og ungmenni með fjölþættar stuðningsþarfir og fjölskyldur þeirra. Óskað er eftir metnaðarfullum stuðningsfulltrúa á Dvalarsviði til starfa með börnum og ungmennum.
Þjónusta SkaHm skiptist í tvö svið, Dvalar- og Ráðgjafarsvið. Undir Dvalarsviði er Styrkur og Dvöl.
Styrkur – Þar sem markmiðið eru að styðja barnið við að efla félagsfærni, sjálfstæði og virkni í daglegum athöfnum. Stuðningurinn fer annars vegar fram í einstaklingsstarfi og hins vegar í hópastarfi.
Dvöl – Er sólarhringsþjónusta þar sem markmiðið er að veita börnum og foreldrum tímabundna hvíld með það að leiðarljósi að draga úr streituvaldandi aðstæðum sem hafa skapast inn á heimili. Auk þess felst starfsemin í því að styðja barnið í athöfnum daglegs lífs.
Undir Ráðgjafasviði er Heimastuðningur og ráðgjöf.
Heimastuðningur og ráðgjöf - Leggur áherslu á að styðja barn í tilfinningavanda og valdefla/styðja foreldra í uppeldishlutverki sínu. Þjónustan er veitt í nærumhverfi fjölskyldunnar.
Laus staða er á Dvalarsviði.
· Mæta þörfum barns á heildstæðan og einstaklingsbundinn hátt.
· Styðja barnið við þær daglegu athafnir sem það þarf.
· Fylgja eftir einstaklingsáætlun barnsins og verklagsreglum.
· Aðstoða einstaklinga varðandi félagslega og heilsufarslega þætti.
· Önnur tilfallandi verkefni sem snúa að skammtímadvölinni.
· Góð almenn menntun.
· Bílpróf.
· Þekking og reynsla af starfi með börnum með margþættan vanda æskileg.
· Jákvætt viðmót og framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum.
· Frumkvæði, jákvæðni, sjálfstæði í vinnubrögðum og skipulagshæfni.
· Viðkomandi þarf að vera 20 ára eða eldri.
· Hreint sakavottorð samkvæmt reglum Reykjavíkurborgar.
· Góð íslensku kunnátta á stigi B2 (í samræmi við samevrópskan tungumálaramma).https://www.coe.int/en/web/portfolio/self-assessment-grid?iframe=true
- Samgöngu- og heilsuræktarstyrkir.
- Sund- og menningarkort.
Íslenska

































