

Starfsmaður í vöruhúsi Blue Lagoon Skincare
Bláa Lónið leitar að jákvæðum og metnaðarfullum einstaklingi til að sinna fjölbreyttum verkefnum í vöruhúsi Blue Lagoon Skincare.
Starfið felst m.a. í því að pakka vörum og sampakkningum, fylgjast með lagerstöðu og að sinna öðrum tilfallandi verkefnum.
Hæfniskröfur:
- Þjónustulund og jákvæðni
- Áreiðanleiki og stundvísi
- Sjálfstæði og öguð vinnubrögð
- Góð íslensku- og enskukunnátta
Um er að ræða framtíðarstarf og kostur ef viðkomandi getur hafið störf sem fyrst.
Starfinu er sinnt á hefðbundnum dagvinnutíma.
Æskilegt er að umsækjendur hafi náð 20 ára aldri.
Viðkomandi mun hafa starfsstöð í Hafnarfirði.
Umsóknarfrestur er til og með 2. nóvember, 2025.
Bláa Lónið er lifandi og skemmtilegur vinnustaður þar sem áhersla er lögð á sífellda þróun og nýsköpun. Í boði er starf á vinnustað sem býður upp á fjölbreyttar og krefjandi áskoranir. Einnig eru ýmis fríðindi í boði, eins og heilsuræktarstyrkur, þátttaka í einu öflugasta starfsmannafélagi landsins og fleira.













