
Samhentir Kassagerð hf
Samhentir Kassagerð hf hafa vaxið jafnt og þétt frá stofnun, frá því að vera lítið sprotafyrirtæki í stærsta umbúðaþjónustufyrirtæki á Íslandi. Lykillinn að framgangi fyrirtækisins liggur í góðum tengslum við viðskipavini og birgja félagsins, vönduðu og reynslumiklu starfsfólki ásamt áherslu á gæði og nýjungar.

Starfsmaður í tollafgreiðslu, innkaupum og umsýslu
Við leitum að reyndum, nákvæmum og skipulögðum einstaklingi til að sinna tollafgreiðslu, innkaupum og tengdum verkefnum. Starfið er fjölbreytt og felur meðal annars í sér tollun innflutningssendinga, bókun útflutnings, meðhöndlun tollskjala og flokkun vara samkvæmt tollskrá.
Starfsmaðurinn mun jafnframt vinna náið með véladeild fyrirtækisins og aðstoða við pöntun, móttöku og reikningsfærslu varahluta. Starfið hentar einstaklingi sem hefur góða yfirsýn, á auðvelt með að halda utan um mörg verkefni og nýtur þess að eiga samskipti við birgja, flutningsaðila og samstarfsfólk.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Tollafgreiðsla innflutningssendinga
- Bókun og frágangur útflutningssendinga
- Yfirferð og skráning toll- og flutningsskjala
- Tollflokkun vara og meðhöndlun tollskrárnúmera
- Samskipti við flutningsaðila, birgja og önnur samstarfsfyrirtæki
- Innkaup, pöntun vara og eftirfylgni pantana
- Náið samstarf við véladeild vegna innkaupa og umsýslu varahluta
- Pöntun, móttaka og skráning varahluta
- Bókun og yfirferð birgjareikninga, meðal annars vegna varahlutakaupa
- Vinna í Navision og öðrum tengdum kerfum
- Önnur tilfallandi verkefni
Menntunar- og hæfniskröfur
- Reynsla af tollafgreiðslu er nauðsynleg
- Góð þekking á tollkerfum, tollskrá og tollflokkun vara
- Reynsla af Navision er mikill kostur
- Reynsla af innkaupum, vörumóttöku og bókun reikninga er kostur
- Reynsla af umsýslu varahluta eða samstarfi við véladeild er kostur
- Góð tölvukunnátta og færni í Excel
- Góð íslensku- og enskukunnátta
- Nákvæmni, sjálfstæði og skipulögð vinnubrögð
- Góð samskiptafærni og geta til að vinna undir álagi
Auglýsing birt2. september 2026
Umsóknarfrestur16. september 2026
Tungumálahæfni
EnskaNauðsyn
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Suðurhraun 4, 210 Garðabær
Starfstegund
Hæfni
AfstemmingDynamics NAVMannleg samskiptiMicrosoft Dynamics 365 Business CentralReikningagerð
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (2)
Sambærileg störf (11)

Business Central ráðgjafi
Wise lausnir ehf.

Starfsmaður í vörustjórnun
Bera hf.

Innkaupafulltrúi
STOÐ

Senior Procurement Specialist | Embla Medical
Embla Medical | Össur

Afgreiðslustarf í Farmasíu apóteki
Farmasía

Skrifstofustarf á Akureyri
Frost

Bókari
Vélrás

Innkaupafulltrúi á vörulager og varahlutasvið
Vélanaust

Bókari til PwC á Akureyri eða Húsavík
PwC

Innkaupasérfræðingur í aðfangakeðju / Supply Chain Purchasing Specialist
NEWREST ICELAND ehf.

Bókari í hlutastarf
Tindasel - The Farm