

Tæknimaður á verkstæði
Starfs- og ábyrgðarsvið:
Viðhald, bilanagreining og uppsetning á fjölbreyttum búnaði sem að fyrirtækið flytur inn og selur. Pökkunarvélar, prentbúnaður, kjöt og fiskvinnsluvélar, róbotar eru meðal þess sem þarf að sinna. Ráðgjöf til viðskiptavina um viðhald og viðgerðir véla. Gert er ráð fyrir að viðkomandi geti farið í ferðir út á land og jafnvel erlendis. Um er að ræða fjölbreytt og skemmtilegt starf sem unnið er ýmist hjá viðskiptavinum og á verkstæði félagsins.
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Þekking á iðnstýringum og almennum rafstýringum, vélrænt innsæi, tölvulæsi tækja.
- Tæknimenntun á sviði vélstjórnar eða iðnfræði, sveinspróf í vélvirkjun, rafvikjun, rafeindavirkjun, bifvélavirkjun eða sambærilegt.
- Hæfni í mannlegum samskiptum.
- Íslensku og enskukunnátta, önnur tungumál kostur.
- Sjálfstæð og öguð vinnubrögð
- Vandvirkni
- Almenn tölvukunnátta
- Ökuréttindi
Jafnframt því að sækjast eftir aðilum með reynslu á þessu sviði þá hvetjum við einnig ungt fólk af öllum kynjum sem hefur menntað sig á þessu sviði til þess að sækja um en félagið hefur starfsmenn sem geta síðar miðlað af sinni reynslu í þjálfunarferlinu. Einnig bjóða erlendir samstarfsaðilar uppá þjálfun.
Samhentir Kassagerð var stofnað árið 1996. Félagið hefur vaxið jafnt og þétt frá stofnun, frá því að vera lítið sprotafyrirtæki í stærsta umbúðaþjónustufyrirtæki á Íslandi. Lykillinn að framgangi fyrirtækisins liggur í góðum tengslum við viðskipavini og birgja félagsins, vönduðu og reynslumiklu starfsfólki ásamt áherslu á gæði og nýjungar. Félagið leggur mikla áherslu á að vinnustaðurinn sé lifandi og skemmtilegur og hefur virkt og öflugt starfsmannafélag.
Íslenska
Enska










