
Samhentir Kassagerð hf
Samhentir Kassagerð hf hafa vaxið jafnt og þétt frá stofnun, frá því að vera lítið sprotafyrirtæki í stærsta umbúðaþjónustufyrirtæki á Íslandi. Lykillinn að framgangi fyrirtækisins liggur í góðum tengslum við viðskipavini og birgja félagsins, vönduðu og reynslumiklu starfsfólki ásamt áherslu á gæði og nýjungar.

Aðstoðarmaður í mötuneyti óskast
Við leitum að reynslumiklum og þjónustulunduðum einstaklingi til að aðstoða matreiðslumann í stækkandi mötuneyti Samhentra.
Starfið felst í að aðstoða matreiðslumann mötuneytisins við dagleg störf, þar á meðal undirbúning máltíða, frágang, hreinlæti, móttöku vara og önnur tilfallandi verkefni sem tengjast rekstri mötuneytisins.
Við leitum að einstaklingi sem hefur reynslu af störfum í mötuneyti, eldhúsi eða sambærilegu starfsumhverfi og þekkir mikilvægi góðs skipulags, hreinlætis og faglegra vinnubragða. Mikilvægt er að viðkomandi geti unnið sjálfstætt, tekið frumkvæði og lagt sitt af mörkum til góðrar liðsheildar.
Mötuneytið mun þjónusta um 80 manns.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Framleiðsla á mat
- Flutningur á tilbúnum mat milli húsa
- Frágangur
- Þrif á vinnufatnaði
- Tilfallandi verkefni
Menntunar- og hæfniskröfur
Matartæknir eða sambærilegt
Auglýsing birt26. ágúst 2026
Umsóknarfrestur4. september 2026
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Suðurhraun 4, 210 Garðabær
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar





