Helgafellsskóli
Helgafellsskóli
Helgafellsskóli

Aðstoðarmatráður óskast í afleysingar

Við leitum að öflugum starfsmanni til tímabundinna starfa í eldhúsi Helgafellsskóla vegna veikindaforfalla. Helgafellsskóli er samþættur leik- og grunnskóli með um 500 nemendur. Starfið er tímabundið til þriggja mánaða, með möguleika á framlengingu.

Helgafellsskóli er heilsueflandi skóli þar sem áhersla er lögð á hollan og næringarríkan mat.

Aðstoðarmatráður sinnir fjölbreyttum daglegum verkefnum í eldhúsi, meðal annars matseld, uppvaski, frágangi og ræstingu. Einnig felur starfið í sér frágang á þvotti og önnur tilfallandi verkefni eftir þörfum. Vinnutími er frá kl. 8:00 til 16:00 alla virka daga.

Mosfellsbær er öflugt og framsækið sveitarfélag þar sem virðing, jákvæðni, framsækni og umhyggja eru höfð að leiðarljósi í daglegu starfi.

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Reynsla af sambærilegu starfi er kostur
  • Þekking og áhugi á næringargildi og hollustu í matargerð
  • Þekking á bráðaofnæmi og ofnæmi/fæðuóþol almennt
  • Frumkvæði, skipulagshæfni, sveigjanleiki og færni í samskiptum
  • Hreinlæti og snyrtimennska
  • Íslenskukunnátta
Auglýsing birt18. ágúst 2026
Umsóknarfrestur1. september 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Gerplustræti 14, 270 Mosfellsbær
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.EldhússtörfPathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.Skipulag
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar