![Eir hjúkrunarheimili](https://alfredprod.imgix.net/logo/9783af25-9630-4950-8698-8feeb86bcd6d.png?w=256&q=75&auto=format)
Eir hjúkrunarheimili
Eir hjúkrunarheimili í Grafarvogi tók til starfa árið 1993. Eir tryggir umfangsmikla og fjölbreytta starfsemi fyrir lasburða eldri borgara og er meðal stærstu hjúkrunarheimila landsins með samtals 185 pláss. Unnt er að bjóða sérlausnir fyrir ýmsa hópa svo sem aðstöðu fyrir blinda og sjónskerta hjúkrunarsjúklinga, einstaklinga með heilabilun á öllum stigum svo sem dagdeildir og heimilisdeildir. Á Eir er líka endurhæfingardeild þar sem einstaklingum frá Landspítala býðst endurhæfing eftir heilsufarsáföll. Á endurhæfingardeildinni hefur náðst frábær árangur þar sem yfir 90% skjólstæðinga útskrifast heim.
Hjá okkur starfar öflugur og fjölbreyttur hópur starfsfólks með fjölbreytta menntun og starfsreynslu að baki.
Ef þú vilt bætast í teymið okkar, sendu okkur þá umsókn !
![Eir hjúkrunarheimili](https://alfredprod.imgix.net/cover/d1cdf18b-aa2d-4c92-92eb-18ce8aa4533a.png?w=1200&q=75&auto=format)
Starfsmaður í dagþjálfun
Öflugur og jákvæður starfsmaður óskast í dagþjálfun Eirar. Dagþjálfunin er staðsett við Spöngina í Grafarvogi og er sérhæfð dagþjálfun fyrir 24 einstaklinga með heilabilun, Alzheimer eða aðra skylda sjúkdóma. Starfshlutfall er 80-100% á dagvinnutíma.
Í dagþjálfun leggjum við áherslu á jákvæðni og hlýju í samskiptum og hvetjum skjólstæðinga okkar til þátttöku í starfi sem viðheldur líkamlegri, vitrænni og félagslegri færni þeirra.
Starfsfólk í dagþjálfun undirbýr, aðstoðar og leiðbeinir í hópastarfi, handverki, leikfimi og almennri samveru. Einnig sinnir starfsfólk undirbúningi og frágangi eftir máltíðir og aðstoðar við böðun og aðrar athafnir daglegs lífs eftir þörfum.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Góð íslenskukunnátta
- Frumkvæði og sköpunargleði
- Jákvæðni og góð samskiptahæfni
- Reynsla af sambærilegum störfum er kostur en þó ekki nauðsynleg
Auglýsing stofnuð25. júní 2024
Umsóknarfrestur14. júlí 2024
Tungumálahæfni
![Íslenska](https://alfredflags.imgix.net/is.png?w=60&h=60)
Staðsetning
Hlíðarhús 7, 112 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (2)
Sambærileg störf (12)
![NPA miðstöðin](https://alfredprod.imgix.net/logo/a58f673d-1277-4970-8243-fbf9775b2ada.png?w=256&q=75&auto=format)
Aðstoðarkonur óskast á dagvaktir
NPA miðstöðin
![Fjarðabyggð](https://alfredprod.imgix.net/logo/ba86577f-f1cf-420b-b443-3f1678b3ee47.png?w=256&q=75&auto=format)
Starfsmaður í búsetuþjónustu fyrir fatlað fólk
Fjarðabyggð
![Kópavogsbær](https://alfredprod.imgix.net/logo/41a293e1-fc6c-41cb-80b7-ba4ed6a08a79.png?w=256&q=75&auto=format)
Starfsmaður í Sértæka heimaþjónustu
Kópavogsbær
![Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins](https://alfredprod.imgix.net/logo/71d47ba3-c988-444a-8cd5-7318f836ae9f.png?w=256&q=75&auto=format)
Meðferðaraðili - Heilaörvunarmiðstöð HH
Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins
![Skjól hjúkrunarheimili](https://alfredprod.imgix.net/logo/dafa66d8-5783-42a7-b379-c6e73bed75b8.png?w=256&q=75&auto=format)
Starfsmaður í dagþjálfun - Maríuhús
Skjól hjúkrunarheimili
![NPA miðstöðin](https://alfredprod.imgix.net/logo/a58f673d-1277-4970-8243-fbf9775b2ada.png?w=256&q=75&auto=format)
Gott starf í Keflavík
NPA miðstöðin
![NPA miðstöðin](https://alfredprod.imgix.net/logo/a58f673d-1277-4970-8243-fbf9775b2ada.png?w=256&q=75&auto=format)
Aðstoðarfólk óskast í Garðabæ
NPA miðstöðin
![Hrafnista](https://alfredprod.imgix.net/logo/is-ff27d689-8902-4e45-8846-f28cebfc9b93.png?w=256&q=75&auto=format)
Umönnun - Hraunvangur
Hrafnista
![NPA miðstöðin](https://alfredprod.imgix.net/logo/a58f673d-1277-4970-8243-fbf9775b2ada.png?w=256&q=75&auto=format)
Viltu vera hjálparhönd í daglegu lífi
NPA miðstöðin
![Heiða slf](https://alfredprod.imgix.net/logo/e348bab2-63dc-448f-8bbe-1c1031d1afd7.png?w=256&q=75&auto=format)
Aðstoðarkona óskast til starfa
Heiða slf
![Grund hjúkrunarheimili](https://alfredprod.imgix.net/logo/is-882a69ab-469c-481e-bcda-dbadd712a97e.png?w=256&q=75&auto=format)
Laus störf við umönnun í sumar
Grund hjúkrunarheimili
![NPA miðstöðin](https://alfredprod.imgix.net/logo/a58f673d-1277-4970-8243-fbf9775b2ada.png?w=256&q=75&auto=format)
Ævintýragjarnt aðstoðarfólk óskast í afleysingar
NPA miðstöðin