![Eir hjúkrunarheimili](https://alfredprod.imgix.net/logo/9783af25-9630-4950-8698-8feeb86bcd6d.png?w=256&q=75&auto=format)
Eir hjúkrunarheimili
Eir hjúkrunarheimili í Grafarvogi tók til starfa árið 1993. Eir tryggir umfangsmikla og fjölbreytta starfsemi fyrir lasburða eldri borgara og er meðal stærstu hjúkrunarheimila landsins með samtals 185 pláss. Unnt er að bjóða sérlausnir fyrir ýmsa hópa svo sem aðstöðu fyrir blinda og sjónskerta hjúkrunarsjúklinga, einstaklinga með heilabilun á öllum stigum svo sem dagdeildir og heimilisdeildir. Á Eir er líka endurhæfingardeild þar sem einstaklingum frá Landspítala býðst endurhæfing eftir heilsufarsáföll. Á endurhæfingardeildinni hefur náðst frábær árangur þar sem yfir 90% skjólstæðinga útskrifast heim.
Hjá okkur starfar öflugur og fjölbreyttur hópur starfsfólks með fjölbreytta menntun og starfsreynslu að baki.
Ef þú vilt bætast í teymið okkar, sendu okkur þá umsókn !
![Eir hjúkrunarheimili](https://alfredprod.imgix.net/cover/d1cdf18b-aa2d-4c92-92eb-18ce8aa4533a.png?w=1200&q=75&auto=format)
Deildarstjóri í eignaumsýslu
Eir hjúkrunarhemili óskar eftir drífandi stjórnanda í starf deildarstjóra eignaumsýslu. Um spennandi og fjölbreytt starf að ræða fyrir einstakling með mikla þjónustulund.
Í eignaumsýslu starfa um 10 starfsmenn.
Deildarstjóri fer með daglegan rekstur á deild eignaumsýslu, úthlutun verkefna og afgreiðslu ábendinga. Almenn umsjón og eftirlit með eignum og lóðum félaganna.
Helstu verkefni og ábyrgð
-
Verkstjórn og eftirlit með framkvæmd verkefna
-
Yfirumsjón með daglegum rekstri deildarinnar
-
Ábyrgð á kostnaðaraðhaldi og rekstri fasteigna
-
Koma að gerð viðhaldsáætlana
-
Sjá um innkaup á deildina
-
Ábyrgð á ánægju hagaðilana og árangri deildarinnar
Menntunar- og hæfniskröfur
-
Sveins- eða meistarapróf í iðngrein á sviði bygginga- og mannvirkjagerðar
-
Sveigjanleiki, jákvætt hugafar og framúrskarandi þjónustulund
-
Reynsla af undirbúningi skipulagi viðhaldsverkefna og endurnýjunar á húsnæðum er kostur
-
Reynsla af teymisvinnu og stjórnunarstörfum er mikill kostur
-
Góð hæfni í mannlegum samskiptum, frumkvæði og metnaður í starfi
-
Gott vald á íslensku og ensku í töluðu og rituðu máli
-
Góð tölvukunnátta og áhugi á starfrænum lausnum
Auglýsing stofnuð21. júní 2024
Umsóknarfrestur15. júlí 2024
Tungumálahæfni
![Íslenska](https://alfredflags.imgix.net/is.png?w=60&h=60)
Staðsetning
Hlíðarhús 7, 112 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
FrumkvæðiJákvæðniMálningarvinnaÖkuréttindiSveigjanleikiÞjónustulund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (3)
Sambærileg störf (1)