

Starfsmaður á þjónustukjarna fyrir fatlað fólk - Drekavellir
Hafnarfjarðarbær óskar eftir að ráða öflugan starfsmann í lærdómsríkt starf á heimili fatlaðs fólks, staðsett á Völlunum. Unnið er eftir hugmyndafræði Þjónandi leiðsagnar.
Spennandi og skemmtilegt starf, með fjölbreyttum verkefnum í vaktavinnu. Viðkomandi þarf að geta unnið morgun, kvöld, og helgarvaktir. Um er að ræða 80-100% starf.
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Veita íbúum stuðning við athafnir daglegs lífs
- Hafa gaman í vinnunni, vera öðrum fyrirmynd og sýna frumkvæði
- Fylgja þjónustuáætlunum og verklagsreglum
- Virkja íbúa til þátttöku í samfélaginu og tómstundum
- Almenn heimilisstörf
- Samskipti við ýmsa þjónustuaðila
- Önnur verkefni samkvæmt starfslýsingu
Hæfniskröfur:
- Reynsla af sambærilegum störfum æskileg
- Áhugi á málefnum fatlaðs fólks
- Íslenskukunnátta skilyrði
- Þjónustulund og jákvæðni í starfi
- Hæfni í mannlegum samskiptum
- Frumkvæði og samviskusemi
- Ágætis tölvukunnátta
- Líkamleg geta til að sinna verkefnum á vinnustað
- Ökuréttindi skilyrði
Skilyrði er að viðkomandi hafi náð 20 ára aldri og hafi hreint sakavottorð.
Umsókn fylgi greinargóð ferilskrá.
Frekari upplýsingar um starfið Berglind Brynjarsdóttir, forstöðukona í síma: 544-2360, netfang: [email protected] eða Hrönn Hilmarsdóttir, netfang: [email protected]
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við Starfsmannafélag Hafnarfjarðar.
Umsóknarfrestur er til og með 7. júlí 2025.
Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins.
































