Sveitarfélagið Árborg
Sveitarfélagið Árborg
Sveitarfélagið Árborg

Starfsmaður á skammtímadvöl fyrir fatlaða

Sveitarfélagið Árborg auglýsir eftir starfsfólki í skammtímadvöl fyrir fatlað fólk. Starfshlutföll eru mismunandi en unnið er á morgun, kvöld og helgarvöktum.

Helstu markmið með starfinu er að leitast við að auka lífsgæði og sjálfstæði þjónustunotenda og stuðla að valdeflingu þeirra. Áhersla er lögð á að veita þjónustunotendum persónulegan stuðning í daglegu lífi sem sniðin er að þörfum þeirra og skapa þeim skilyrði til sjálfstæðs lífs á eigin forsendum, sbr. 19.gr. samnings sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks. Ásamt því að stuðla að þátttöku þeirra í samfélaginu með tilliti til mismunandi þarfa og getu.

Unnið er eftir hugmyndafræðinni um þjónandi leiðsögn og er starfið skipulagt samkvæmt lögum nr. 38/2018 um málefni fatlaðs fólks með langvarandi stuðningsþarfir og lögum um félagsþjónustu sveitarfélaga nr.1037/2018 auk tengdra reglugerða.

Um er að ræða stöður í vaktavinnu í skammtímadvöl fyrir fullorðna.

Í Sveitarfélaginu Árborg búa rúmlega 12.000 íbúar og starfa um 1000 manns hjá sveitarfélaginu. Lögð er áhersla á að skapa starfsumhverfi sem stuðlar að vellíðan og árangri þar sem starfað er af fagmennsku og góðum ásetningi með hag sveitarfélagsins að leiðarljósi.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Að taka þátt í faglegu starfi með þjónustunotendum
  • Að tileinka sér og vinna eftir hugmyndafræði málefnum fatlaðra
  • Að taka þátt í mótun og að veita einstaklingsmiðaða persónulega þjónustu
  • Að efla og styðja þjónustunotendur við allar athafnir daglegs lífs og félagslega þátttöku
  • Að taka þátt í að efla frumkvæði, færni og sjálfstæði þjónustunotenda
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Góð íslenskukunnátta er skilyrði
  • Félagsliðamenntun eða önnur menntun sem nýtist í starfi
  • Reynsla af störfum með fötluðum æskileg    S
  • veigjanleiki, frumkvæði, sjálfstæði og skipulagshæfni í starfi
  • Hæfni í mannlegum samskiptum
  • Þjónustulund, góð framkoma og jákvætt viðmót
  • Hreint sakavottorð í samræmi við lög og reglur 
Auglýsing birt27. júní 2025
Umsóknarfrestur9. júlí 2025
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Birkihólar 18, 800 Selfoss
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.SkipulagPathCreated with Sketch.Sveigjanleiki
Starfsgreinar
Starfsmerkingar