
Sveitarfélagið Árborg
Sveitarfélagið Árborg er fjölmennasta sveitarfélagið á Suðurlandi. Það varð til við sameiningu Eyrarbakkahrepps, Sandvíkurhrepps, Selfossbæjar og Stokkseyrarhrepps. Sveitarfélagið hefur vaxið ört síðastliðin ár og telur nú tæplega 12.000 íbúa. Þar er miðstöð þjónustu á Suðurlandi, góðir skólar ásamt öflugu íþrótta-, félags- og menningarlífi. Starfsmenn sveitarfélagsins eru um 1000 og lögð er áhersla á að skapa starfsumhverfi sem stuðlar að vellíðan og árangri, þar sem starfað er af fagmennsku og góðum ásetningi með hag sveitarfélagsins að leiðarljósi.

Ráðgjafi í barnavernd
Sveitarfélagið Árborg leitar að öflugum starfsmanni í barnaverndarþjónustu Árborgar. Starfið er tvíþætt, annars vegur felur það í sér tilsjónarvinnu í samræmi við barnaverndarlög nr. 80/2002 og hins vegar móttaka símtala og gagna.
Markmið starfsins er að styrkja foreldra í uppeldishlutverki sínu, stuðla að bættum uppeldisskilyrðum barna og veita raunhæfan stuðning á heimilum fjölskyldna í samstarfi við barnaverndarstarfsmenn.
Um er að ræða 100% starf
Í Sveitarfélaginu Árborg búa rúmlega 12.000 íbúar og starfa um 1000 manns hjá sveitarfélaginu. Lögð er áhersla á að skapa starfsumhverfi sem stuðlar að vellíðan og árangri þar sem starfað er af fagmennsku og góðum ásetningi með hag sveitarfélagsins að leiðarljósi.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Heimsækja heimili og fylgjast með samskiptum fjölskyldumeðlima í því skyni að greina styrkleika og vanda í uppeldisaðstæðum.
- Veita leiðsögn og ráðgjöf til foreldra og fjölskyldumeðlima um jákvæðar uppeldisaðferðir og samskipti.
- Vinna náið með öðrum fagaðilum s.s. félagsráðgjöfum, þroskaþjálfum, sálfræðingum, kennurum, og heilbrigðisstarfsfólki, í samráði við teymisstjóra.
- Skrá framvindu mála og skila greinargerðum um vinnu með fjölskyldum ásamt mati á árangri íhlutunar.
- Sitja fundi með ráðgjöfum og fjölskyldum við upphaf, á stöðufundum og við skil á málum, og leggja fram mat á hvernig best megi nýta úrræði.
- Taka þátt í meðferðarfundum barnaverndar þegar þörf er á, samkvæmt tilmælum barnaverndarstarfsmanna.
- Móttaka símtala og gagna ásamt skráningu þeirra í málakerfi sveitarfélagsins.
- Sinna úttektum á heimilum fyrir Barna- og fjölskyldustofu og Gæða- og eftirlitsstofnun samkvæmt beiðni.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi, t.d. B.A. í félagsráðgjöf eða sálfræði, hagnýt atferlisgreining , foreldrafræðsla og uppeldisráðgjöf.
- Þekking og reynsla í að veita foreldrafræðslu og uppeldisráðgjöf.
- Þekking og reynsla af vinnu með barnafjölskyldum– helst innan opinberrar þjónustu.
- Seta námskeiða í uppeldisfræði.
- Góð samskiptahæfni, frumkvæði og hæfni til sjálfstæðrar vinnu.
- Þekking á lögum og reglugerðum sem tengjast starfssviði.
- Hæfni í rituðu máli.
Auglýsing birt8. júlí 2025
Umsóknarfrestur5. ágúst 2025
Tungumálahæfni

Nauðsyn
Staðsetning
Austurvegur 2, 800 Selfoss
Starfstegund
Hæfni
FrumkvæðiMannleg samskiptiSjálfstæð vinnubrögð
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (4)
Sambærileg störf (7)

Félagsmálastjóri
Borgarbyggð

Ráðgjafi í barnavernd
Stjórnsýsla Mosfellsbæjar

Fræðslu- og lýðheilsusvið: Ráðgjafi í skólaþjónustu
Akureyri

Félagsráðgjafi eða sérfræðingur í barna- og fjölskylduvernd
Fjölskyldusvið

Forstöðumaður íbúðakjarna í Kópavogi
Kópavogsbær

Félagsráðgjafi í barnavernd – Hveragerðisbær leitar að öflugum liðsmanni
Hveragerðisbær

Félagsráðgjafi í almennri félagsþjónustu – Vertu hluti af öflugu velferðarteymi Hveragerðisbæja
Hveragerðisbær