

Sjúkraliði óskast til starfa á Patreksfirði
Heilbrigðisstofnun Vestfjarða á Patreksfirði óskar eftir að ráða sjúkraliða í 70-100% starf frá 15. ágúst eða eftir samkomulagi.
Á deildinni starfar öflugur hópur og er þar góður starfsandi sem einkennist af samheldni, vináttu, metnaði og gleði. Hjá Heilbrigðisstofnun Vestfjarða starfa rúmlega 270 manns og veitir stofnunin almenna heilbrigðisþjónustu á þremur sviðum; hjúkrunarsviði, heilsugæslusviði og sjúkrasviði, með sjúkrahús á Ísafirði og Patreksfirði. Í teyminu, sem byggir á samstarfi ríkis og sveitarfélaga, er lögð rík áhersla á góða samvinnu, góðan starfsanda og að virðing sé borin fyrir samstarfsfólki og skjólstæðingum.
Um er að ræða almenn störf sjúkraliða á legudeild. Hér er gott tækifæri fyrir reynslumikinn sjúkraliða sem langar að breyta um umhverfi. Þetta er einnig kjörin staða fyrir þá sem vilja öðlast fjölbreytta reynslu.
- Íslenskt sjúkraliðaleyfi
- Frumkvæði og sjálfstæði í starfi
- Jákvæðni og góð hæfni í mannlegum samskiptum











