

Aðstoðarleikskólastjóri - Leikskólinn Arnarberg
Leikskólinn Arnarberg auglýsir eftir faglegum og metnaðarfullum aðstoðarleikskólastjóra
Arnarberg vinnur markvist með læsi og læsishvetjandi umhverfi, lögð er áhersla á að skapa hvetjandi umhverfi í læsi. Einnig er lögð áherslu á hreyfingu og hefur skólinn afnot af Bjarkarhúsinu sem er við hliðina á skólanum.
Umhverfi skólans er rólegt og friðsælt og nýt góðs af staðsetningunni þar sem er stutt í miðbæinn og strætisvagnaleiðir, Hellisgerði og Lækinn.
Leitað er eftir einstaklingi sem hefur góða hæfni í samskiptum og samstarfi, vilja til að þróa leikskólastarf, er skipulagður og umbótadrifinn og hefur metnað til að ná árangri í starfi. Mikilvægt er að viðkomandi sé faglegur leiðtogi, lausnamiðaður og jákvæður.
Markmið mennta- og lýðheilsusviðs Hafnarfjarðarbæjar er að vera faglegt og framsækið forystuafl í mennta-, æskulýðs- og íþróttamálum og veita börnum og fjölskyldum í bænum heildstæða þjónustu og stuðla að samfellu í öllu starfi sem hefur velferð íbúa að leiðarljósi.
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Vinnur að og ber ábyrgð á, ásamt leikskólastjóra, að unnið sé eftir aðalnámskrá leikskóla og skólanámskrá leikskólans, að áætlanir þar um séu gerðar og reglulegt mat fari fram
- Er aðstoðarmaður leikskólastjóra og staðgengill hans
- Sinnir, ásamt leikskólastjóra, skipulagi skólastarfsins dag frá degi
- Leiðbeinir inn í fagstarf hverrar deildar og sinnir snemmbærum stuðningi við nemendur með ólíkan menningarlegan bakgrunn og tungumál
- Sér um samskipti og samvinnu við foreldra í samráði við leikskólastjóra
- Situr foreldrafundi sem haldnir eru á vegum leikskólans
- Önnur verkefni skv. starfslýsingu
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Leyfisbréf sem kennari, leyfisbréf fylgi umsókn
- Reynsla af starfi á leikskóla og leikskólakennslu skilyrði
- Framhaldsmenntun á sviði stjórnunar eða uppeldis- og/eða kennslufræða kostur
- Stjórnunarreynsla kostur
- Frumkvæði í starfi og faglegur metnaður
- Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
- Góð samstarfs- og samskiptahæfni
- Góð íslenskukunnátta
- Góð tölvukunnátta
Skilyrði er að viðkomandi hafi hreint sakavottorð.
Nánari upplýsingar veitir Bjarney Kristín Hlöðversdóttir, leikskólastjóri, [email protected].
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við KÍ v/ Félags stjórnenda leikskóla.
Umsóknarfrestur er til og með 7. júlí 2025
Greinagóð ferilskrá, kynningarbréf og leyfisbréf fylgi umsókn.
Öllum umsóknum verður svarað eftir að umsóknarfrestur er liðinn og unnið hefur verið úr umsóknum.
Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika

































