
Tanntæknir á tannlæknastofu í Kópavogi
Tanntæknir – 90% starf
Upphafsdagur: 15. ágúst 2025
Umsóknarfrestur: 1. júlí 2025
Um okkur:
Tannlæknastofan er níu manna teymi, þar af tveir almennir tannlæknar og einn tannréttingasérfræðingur. Sérfræðingurinn óskar eftir tanntækni til liðs við sig og teymið. Lögð er áhersla á fagleg vinnubrögð, vinalegt umhverfi og persónulega þjónustu við skjólstæðinga.
Helstu verkefni:
– Klínísk aðstoð við meðferð sjúklinga við tannlæknastól
– Sótthreinsun tækja og aðstöðu
– Myndataka og undirbúningur gagna fyrir meðferð
– Almenn þjónusta: pöntun tækja, skráningar og pappírsvinna
– Önnur tilfallandi verkefni eftir þörfum
Menntunar- og hæfniskröfur:
– Tanntæknir (eða sambærileg menntun)
– Reynsla af starfi á tannlæknastofu er kostur
– Góð færni í samskiptum og teymisvinnu
Vinnutími:
– Mánudaga til fimmtudaga kl. 08:00 - 16:00
– Annan hvern föstudag kl. 08:00 - 13:00
Nánari upplýsingar er hægt að nálgast á heimasíðunni spangir.is













