
Starfskraftur í dagþjálfun - Múlabær
Við viljum ráða inn öflugan einstakling í 60-100% starf
Múlabær er dagþjálfun fyrir eldra fólk. Markmið þjónustunnar er að bæta lífsgæði fólks.
Daglega koma um 70 einstaklingar í dagþjálfun í Múlabæ til að nýta sér fjölbreytta þjónustu í frábærri aðstöðu og hvetjandi félagsskap. Boðið er upp á hjúkrunarþjónustu, æfinga- og tækjasal, sjúkraþjálfun, listasmiðju, vinnustofu auk fjölbreytts félagsstarfs.
Í Múlabæ starfar samheldinn og öflugur hópur starfsfólks þar sem áhersla er lögð á samvinnu og jákvæðan starfsanda. Starfið er í stöðugri þróun því við viljum veita frábæra þjónustu.
Múlabær er opinn alla virka daga frá kl 8-16.
Heimasíða: www.mulabaer.is
Þú getur fylgst með Múlabæ á fésbókinni: https://www.facebook.com/profile.php?id=100057566435048
Ef þú hefur áhuga á að starfa með okkur þá endilega hafðu samband, [email protected]
Ráðningartími er frá 1.10.2025 eða eftir samkomulagi.
- Styðja við fólk að bættum lífsgæðum í samvinnu við aðra starfsmenn
- Leiðbeina í æfinga- og tækjasal
- Taka þátt í félagsstarfi, skipuleggja það og framkvæma
- Aðstoða skjólstæðinga við athafnir daglegs lífs
- Fyrst og fremst áhugi á að vinna með eldra fólki
- Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð
- Menntun á einhverju eftirfarandi sviða er kostur en ekki nauðsyn
- Sjúkraliðanám
- Hjúkrunarfræði
- Tómstundafræði
- Iðjufræði
- Félagsráðgjöf
- Félagsliðanám
- Íþrótta- og heilsufræði
- Stytting vinnuvikunnar
- Mötuneyti
- Heilsustyrkur












