Staða lögfræðings á skrifstofu almanna- og réttaröryggis
Við leitum að metnaðarfullum og drífandi lögfræðingi sem hefur áhuga á að starfa með öflugum hópi starfsmanna að málum á sviði almanna- og réttaröryggis. Skrifstofa almanna- og réttaröryggis hefur umsjón með þeim málaflokkum í íslenskri stjórnsýslu er varða með einum eða öðrum hætti öryggi almennings og réttaröryggi í landinu. Þannig sinnir skrifstofan stefnumótun og úrlausn mála í eftirtöldum málaflokkum: löggæsla, ákæruvald, fullnusta refsinga, landhelgisgæsla, almannavarnir og alþjóðleg réttaraðstoð, ásamt aðgerðum gegn ýmis konar brotastarfsemi, s.s. peningaþvætti, skipulagðri brotastarfsemi, mansali, tölvubrotum og hryðjuverkum.
Starfið felst í fjölbreyttum verkefnum þvert á málaflokka skrifstofunnar þar sem viðkomandi vinnur ýmist sjálfstætt, í teymi eða undir leiðsögn annarra sérfræðinga á skrifstofunni, að því að tryggja skilvirka og viðeigandi úrlausn erinda fyrir hönd dómsmálaráðuneytisins. Meðal verkefna er;
- afgreiðsla fyrirspurna og verkefna þvert á málaflokka skrifstofunnar, þ.m.t. frá Alþingi og öðrum stjórnvöldum,
- meðferð alþjóðlegra réttarbeiðna,
- gerð umsagna til ríkislögmanns,
- aðstoða aðra sérfræðinga vegna alþjóðlegra úttekta þvert á málefnasvið skrifstofunnar,
- annast samskipti við undirstofnanir og samstarfsaðila o.fl.,
- önnur verkefni sem skrifstofustjóri/teymisstjóri felur starfsmanni eftir atvikum.
- Fullnaðarnám í lögfræði með embættis- eða grunn- og meistaraprófi,
- þekking og reynsla af störfum innan stjórnsýslunnar og/eða starfsreynsla á sviði lögfræði kostur,
- þekking og reynsla af málefnasviði skrifstofunnar kostur,
- mjög gott vald á íslensku og færni til að tjá sig í ræðu og riti,
- mjög góð enskukunnátta og færni til að tjá sig í ræðu og riti,
- frumkvæði og geta til að starfa sjálfstætt sem og í hóp,
- drifkraftur, jákvæðni og skipulagshæfileikar,
- rík þjónustulund og samskiptahæfni.