KPMG Law ehf.
KPMG Law ehf.
KPMG Law ehf.

Lögfræðingar hjá KPMG Law

Við leitum að metnaðarfullum og jákvæðum lögfræðingi til þess að sinna fjölbreyttri ráðgjöf og þjónustu til viðskiptavina í frammistöðudrifnu umhverfi.

Við leggjum ríka áherslu á að samvinnu milli sviða með breiða nálgun gagnvart viðskiptavinum okkar og mun viðkomandi því vinna náið með öðrum ráðgjöfum á sviðum fjármála og rekstrar, bæði á íslenskum og erlendum vettvangi.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Almenn lögfræðiráðgjöf fyrir viðskiptavini KPMG.
  • Þátttaka í framkvæmd áreiðanleikakannana.
  • Samninga- og skjalagerð um framkvæmd og frágang viðskipta.
  • Ráðgjöf og þjónusta tengd kaupum og sölum fyrirtækja og fjármögnun þeirra.

Hæfniskröfur:

  • Meistaragráða í lögfræði.
  • Kostur ef umsækjandi hefur reynslu af viðskipta-, fjármála- og/eða fyrirtækjalögfræði.
  • Brennandi áhugi á fjármálum fyrirtækja, rekstri og viðskiptum.
  • Þekking og áhugi á stafrænni þróun og tækni er mikill kostur.
  • Framúrskarandi hæfni til að setja fram mál í ræðu og riti, bæði á íslensku og ensku.
  • Geta og metnaður til að vinna í krefjandi vinnuumhverfi og undir álagi.
  • Lipurð í mannlegum samskiptum og þjónustulund.

Í samræmi við markmið okkar í jafnréttismálum hvetjum við allt fólk til að sækja um óháð kyni.

KPMG Law ehf.

KPMG Law er sérhæfð lögmannsstofa í alþjóðlegu samstarfi KPMG sem hefur vaxið mjög á undanförnum árum og er ein af leiðandi stofunum hér á landi á sviði fyrirtækjalögfræði. Við leggjum ríka áherslu á að veita viðskiptavinum okkar framúrskarandi þjónustu og bjóðum upp á frábær tækifæri fyrir metnaðarfullt fólk til starfsþróunar í sveigjanlegu og fjölbreyttu vinnuumhverfi. Hjá okkur starfar á fjórða tug lögmanna, lögfræðinga og annarra sérfræðinga.

Við störfum náið með öðrum sérfræðingum KPMG innanlands sem og erlendis sem gerir okkur kleift að veita þjónustu á breiðum grunni, hvort sem er á sviðum lögfræði, fjármála eða rekstrar. Sérfræðingar okkar þekkja lögin og skilja áhrif þeirra á rekstur.

Nokkur dæmi um kosti þess að vinna hjá KPMG Law:

  • Fjölbreytt verkefni í alþjóðlegu umhverfi og tækifæri til að hafa jákvæð áhrif á viðskiptalífið og samfélagið í heild.
  • Frábær tækifæri til að læra af leiðandi sérfræðingum og þróast í starfi.
  • Fyrsta flokks mötuneyti í Borgartúni með fjölbreyttu og hollu fæði.
  • Heilsueflandi vinnustaður, t.d. eru þrektímar í boði tvisvar í viku í Borgartúni, hlaupaklúbbur, fjallgönguklúbbur, golfklúbbur, vikulegur fótbolti og fleira.
  • Aðgangur að heilsustyrk, samgöngustyrk og 4 tímar á ári hjá sálfræðingi eða öðrum ráðgjöfum sem styðja við andlega heilsu.
  • Sveigjanleiki til að vinna frá mismunandi skrifstofum og að heiman þegar við á.
  • Tækifæri til að vinna á skrifstofum KPMG út um allan heim.
  • Einn launaður dagur á ári til sjálfboðavinnu.
  • Og margt fleira.

Umsóknarfrestur er til og með 6. nóvember 2024.

Umsóknir ásamt ferilskrá og kynningarbréfi óskast fylltar út á heimasíðu KPMG (sækja um hér til hliðar). Nánari upplýsingar veitir Hildur Steinþórsdóttir, sérfræðingur í mannauðsmálum, á hsteinthorsdottir@kpmg.is.

Auglýsing birt24. október 2024
Umsóknarfrestur6. nóvember 2024
Tungumálahæfni
EnskaEnska
Nauðsyn
Framúrskarandi
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
Staðsetning
Borgartún 27, 105 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar