Húsnæðis- og mannvirkjastofnun (HMS)
Húsnæðis- og mannvirkjastofnun (HMS)
Húsnæðis- og mannvirkjastofnun (HMS)

Spennandi sumarstarf hjá HMS: Rafmagnsöryggi

Vilt þú vinna með okkur í sumar?

Vilt þú starfa á nútímalegum vinnustað sem leggur áherslu á framúrskarandi þjónustu, nýsköpun, miðlun upplýsinga og stafræna þróun, og ber ábyrgð á fjölbreyttum málaflokkum á sviði húsnæðis- og mannvirkjamála? Þá gæti sumarstarf hjá HMS verið fyrir þig.

HMS leitar að drífandi og metnaðarfullum einstaklingi í sumarstarf í teymi rafmagnsöryggis á sviði mannvirkja og sjálfbærni.

Sumarstarfsfólk starfar með frábærum sérfræðingum á sínum sviðum og fá dýrmætt tækifæri til að öðlast innsýn og þekkingu á árangursdrifinni starfsemi HMS. Tilvalið starf fyrir námsmenn eða nýútskrifaða.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Eftirlit með innri öryggisstjórnun löggiltra rafverktaka 

  • Ráðgjöf og fræðsla er varðar öryggisstjórnun rafverktaka 

  • Fyrirspurnir og túlkanir um öryggi neysluveitna 

  • Önnur tilfallandi verkefni 

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Stúdentspróf er skilyrði 

  • Frumkvæði, metnaður og drifkraftur. 

  • Skipulagshæfni og nákvæmni. 

  • Jákvæðni og rík þjónustulund. 

  • Gott vald á íslensku skilyrði. 

Auglýsing birt27. janúar 2025
Umsóknarfrestur21. febrúar 2025
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
Staðsetning
Borgartún 21, 105 Reykjavík
Starfstegund
Hentugt fyrir
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar