Spennandi sumarstarf hjá HMS: Mannvirkjaskrá
Vilt þú vinna með okkur í sumar?
Vilt þú starfa á nútímalegum vinnustað sem leggur áherslu á framúrskarandi þjónustu, nýsköpun, miðlun upplýsinga og stafræna þróun, og ber ábyrgð á fjölbreyttum málaflokkum á sviði húsnæðis- og mannvirkjamála? Þá gæti sumarstarf hjá HMS verið fyrir þig.
HMS leitar að drífandi og metnaðarfullum einstaklingi í sumarstarf í teymi mannvirkjaskrár á sviði mannvirkja og sjálfbærni.
Sumarstarfsfólk starfar með frábærum sérfræðingum á sínum sviðum og fá dýrmætt tækifæri til að öðlast innsýn og þekkingu á árangursdrifinni starfsemi HMS. Tilvalið starf fyrir námsmenn eða nýútskrifaða.
-
Framfylgni úttekta og uppfærsla á matstigum
-
Verkefni tengd framvinduskráningu
-
Verkefni tengd tengingu notkunareininga
-
Önnur tilfallandi verkefni
-
Stúdentspróf er skilyrði
-
Frumkvæði, metnaður og drifkraftur.
-
Skipulagshæfni og nákvæmni.
-
Jákvæðni og rík þjónustulund.
-
Gott vald á íslensku skilyrði.