Spennandi starf í nýjum búsetukjarna fyrir fólk með fötlun
Vilt þú taka þátt í að móta þjónustu á nýju heimili frá grunni?
Við hjá Velferðarsviði Mosfellsbæjar leitum að öflugum og framsæknum starfsmönnum til liðs við okkur við opnun á glænýjum kjarna fyrir fatlað fólk með flóknar stuðningsþarfir. Um fyrsta kjarna þessarar tegundar er að ræða hjá Mosfellsbæ og því frábært tækifæri til að taka þátt í að skapa þetta starf frá upphafi.
Starfshlutfall getur verið samkomulagsatriði en gengið er út frá því að starfsfólk vinni aðra hvora helgi og á fjölbreyttum vöktum þar sem að um sólarhringsþjónustu er að ræða.
Mosfellsbær er öflugt og framsækið sveitarfélag þar sem gildin virðing, jákvæðni, framsækni og umhyggja eru leiðarljós starfsmanna í daglegu starfi.
Sérstaklega er óskað eftir umsóknum frá einstaklingum sem hefðu áhuga á 70-90% starfshlutfalli.
Hlutverk starfsmannsins er að styðja við og veita íbúum aðstoð við daglegar athafnir, félagslega virkni og stuðning til sjálfshjálpar. Við munum veita íbúum einstaklingsmiðaða þjónustu og er markmið okkar að öll fái framúrskarandi þjónustu í nýju umhverfi. Í því felst að aðstoða íbúa við dagleg störf, að halda heimili, stunda vinnu og njóta menningar- og félagslífs. Unnið verður eftir hugmyndafræði þjónandi leiðsagnar og valdeflingar. Við störfum samkvæmt lögum um þjónustu við fatlað fólk nr.38/2018.
· Góð almenn menntun
· Áhugi á málefnum fatlaðs fólks
· Reynsla af starfi með fötluðu fólki mikill kostur
· Þekking á hugmyndafræðinni um sjálfstætt líf og þjónandi leiðsögn kostur
· Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum og jákvæðni í starfi
· Frumkvæði, sjálfstæð vinnubrögð og metnaður í starfi
· Viðkomandi þarf að vera 20 ára eða eldri
· Góð íslenskukunnátta skilyrði
· Hæfni til að takast á við krefjandi vinnuumhverfi
· Hreint sakavottorð
Hjá Mosfellsbæ er unnið samkvæmt betri vinnutíma í vaktavinu og ýmis hlunnindi í boði fyrir starfsfólk. Þar má nefna samgöngustyrk, líkamsræktarstyrk og stundkort.