Sérkennsla í Ægisborg
Leikskólasérkennari, þroskaþjálfi, starfsmaður með BS í sálfræði eða aðra sambærilega menntun sem nýtist, óskast til starfa í leikskólanum Ægisborg í Vesturbæ Reykjavíkur. Ægisborg er fjögurra deilda leikskóli þar sem lögð er áhersla á að skapa hlýlegt lærdómssamfélag barna og fullorðinna. Helstu áherslur starfsins hnitast í kringum leik, læsi, hreyfingu og lýðræði og eru kjörorð leikskólans virðing og gleði. Námskrá Ægisborgar og einhverjar viðbótarupplýsingar má nálgast á netinu: https://reykjavik.is/aegisborg
Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Að veita barni með sérþarfi stuðning og leiðsögn.
- Að sinna sérkennslu og atferlisþjálfun.
- Samstarf við foreldra, fagaðila og aðra ráðgjafa.
- Að vinna að gerð einstaklingsnámskrá og fylgja henni eftir.
- Að sinna þeim verkefnum er varða sérkennslu og öðrum störfum innan leikskólans sem yfirmaður felur honum.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Þroskaþjálfamenntun, leikskólasérkennaramenntun, B.S í sálfræði eða önnur sambærileg menntun.Reynsla af sérkennslu æskileg.
- Reynsla af atferlisþjálfun æskileg.
- Lipurð í samskiptum og sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð.
- Frumkvæði, áhugi og metnaður í starfi.
- Góð íslenskukunnátta nauðsynleg.
Fríðindi í starfi
Sundkort
Menningarkort
Stytting vinnuviku
Ókeypis matur
Heilsustyrkur
Samgöngustyrkur
Auglýsing birt28. september 2024
Umsóknarfrestur11. október 2024
Tungumálahæfni
ÍslenskaMjög góð
Staðsetning
Ægisíða 104, 107 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
FrumkvæðiHreint sakavottorðJákvæðniMetnaður
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)
Deildarstjóri í Ævintýraborg Vogabyggð
Ævintýraborg Vogabyggð
Við leitum að leikskólakennara í teymið okkar
Arnarsmári
Stuðningsfulltrúi Grunnskóla Borgarnes og Borgarsels
Borgarbyggð
Deildarstjóri í Varmárskóla
Varmárskóli
Ráðgjafastaða hjá Aflinu (verktaki)
Aflið
Leikskólakennari óskast í Krikaskóla
Krikaskóli
Lausar stöður leikskólakennara
Leikskóladeild Seyðisfjarðarskóla
Aðstoðarskólastjóri Grunnskóla Fáskrúðsfjarðar
Fjarðabyggð
Kennari – Leikskólinn Norðurberg
Hafnarfjarðarbær
Leikskólakennari / leiðbeinandi
Leikskólinn Hagaborg
Kennari – Leikskólinn Tjarnarás
Hafnarfjarðarbær
Kennarar - Skarðshlíðarleikskóli
Hafnarfjarðarbær