Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær

Kennari – Leikskólinn Norðurberg

Leikskólinn Norðurberg óskar eftir að ráða kennara i 100% stöðu, tímabundið í eitt ár.

Leikskólinn Norðurberg er 6 deilda leikskóli í Norðurbæ Hafnarfjarðar. Þar dvelja að meðaltali 100 börn og um 30 starfsmenn. Áherslur leikskólans eru: umhverfismennt og útikennsla (Grænfána leikskóli), jákvæð samskipti (Að næra hjartað/PMT), hollusta og hreyfing/slökun, vináttuleikskóli Barnaheilla og snemmtæk íhlutun í málþroska ungra barna. Á Norðurbergi er starfsfólk með mikinn metnað fyrir starfi sínu og starfsánægja og starfsandi er góður.Leitað er eftir áhugasömum einstaklingum sem hafa metnað og áhuga fyrir starfinu.

Leikskólar Hafnarfjarðar hafa innleitt betri vinnutíma sem miðast við 36 stunda vinnuviku fyrir allt starfsfólk. Starfsfólk í Félagi leikskólakennara og Þroskaþjálfafélaginu hefur kosið fyrirkomulag sem felur í sér að starfsár þeirra er sambærilegt starfsári grunnskólakennara. Þessir starfsmenn taka því út vinnutímastyttingu í kringum jól og áramót, þegar vetrarfrí er í grunnskólum, í dymbilviku og með lengri fjarveru á sumrin.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Að vinna að uppeldi og menntun leikskólabarna
  • Að taka þátt í skipulagningu faglegs starfs
  • Að taka þátt í foreldrasamstarfi í samráði við deildarstjóra
  • Önnur verkefni skv. starfslýsingu og sem yfirmaður felur starfsmanni

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Starfsleyfi sem kennari (leyfisbréf fylgi umsókn)
  • Einlægur áhugi fyrir velgengni allra barna
  • Reynsla af uppeldis- og kennslustörfum með ungum börnum æskileg
  • Færni í samskiptum og samstarfshæfileikar
  • Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum og faglegur metnaður
  • Góð íslenskukunnátta

Fríðindi í starfi:

  • Heilsuræktarstyrkur
  • 75% afsláttur af leikskólagjöldum
  • Forgangur á leikskóla
  • Bókasafnskort
  • Sundkort

Fáist ekki starfsmaður með leyfisbréf til kennslu, kemur til greina að ráða háskólamenntaðan einstakling eða einstakling með reynslu af starfi með börnum, sbr. lög nr. 95/2019. Við hvetjum alla áhugasama til að sækja um.

Skilyrði er að viðkomandi hafi hreint sakavottorð.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Anna Borg Harðardóttir leikskólastjóri, annaborg@hafnarfjordur.is eða í síma 664-5851 og Gunnhildur Grímsdóttir aðstoðarleikskólastjóri, gunnhildur.gr@hafnarfjordur.is í síma 555-3484.

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við KÍ v/ Félags leikskólakennara.

Umsóknarfrestur er til og 10. október 2024.

Greinargóð ferilskrá og leyfisbréf fylgi umsókn.

Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins.

Auglýsing birt26. september 2024
Umsóknarfrestur10. október 2024
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenskaMjög góð
Staðsetning
Norðurvangur 13, 220 Hafnarfjörður
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar