Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins
Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins
Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins

Spennandi hlutastörf fyrir hjúkrunanema á 3. - 4. ári

Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins (HH) óskar eftir að ráða hjúkrunarnema til starfa. HH er fjölskylduvænn vinnustaður sem stuðlar að eftirsóknarverðu og lærdómsríku starfsumhverfi. Hjúkrunarnemar sinna krefjandi og áhugaverðum verkefnum og margvísleg tækifæri eru til að þróa með sér góða þekkingu og hæfni í starfi. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf í janúar nk. eða eftir nánara samkomulagi.

Við leitum að hjúkrunarnemum sem lokið hafa a.m.k. tveimur árum í hjúkrunarfræði og eru tilbúnir að takast á við fjölbreytt, spennandi og skemmtileg verkefni innan heilsugæslunnar. Við bjóðum upp á einstaklingsmiðaða aðlögun sem tekur mið af áhugasviði hvers og eins. Mikið er af námstækifærum í heilsugæslunni meðal annars skyndimóttaka, ung- og smábarnavernd, heilsuvernd og forvarnir.

Um er að ræða tímabundin störf þar sem starfshlutfall er breytilegt á Heilsugæslunni Glæsibæ, Hamraborg, Hlíðum, Miðbæ og Mosfellsumdæmi. Starfsþróunartækifæri eru mörg innan heilsugæslunnar og hvetjum við hjúkrunarnema til að sækja um. Viðkomandi getur hafið störf í febrúar eða eftir nánara samkomulagi.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Verkefni verða í samræmi við hversu langt viðkomandi er kominn í námi og áhugasviði viðkomandi
  • Þátttaka í teymisvinnu 
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Hafa lokið a.m.k. tveimur árum í hjúkrunarnámi
  • Góð samskiptahæfni
  • Jákvæðni og áhugi á læra nýja hluti
  • Íslenskukunnátta og góð almenn tölvukunnátta
Auglýsing birt9. febrúar 2026
Umsóknarfrestur16. febrúar 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
Staðsetning
Álfabakki 16, 109 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.SamviskusemiPathCreated with Sketch.Skipulag
Vinnuumhverfi
Hentugt fyrir
Starfsgreinar
Starfsmerkingar