
Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins
Við rekum fimmtán heilsugæslustöðvar í Reykjavík, Seltjarnarnesi, Mosfellsumdæmi, Kópavogi, Garðabæ og Hafnarfirði, þar sem við veitum samræmda þjónustu.
Einnig sjáum við um sérþjónustustöðvarnar: Heimahjúkrun í Hafnarfirði, Garðabæ, Kópavogi og Mosfellsumdæmi, Geðheilsumiðstöð barna, Göngudeild sóttvarna, Geðheilsuteymi HH austur, Geðheilsuteymi HH vestur, Geðheilsuteymi HH suður, Geðheilsuteymi Taugaþroskaraskanna, Geðheilsuteymi fangelsa, Geðheilsuteymi ADHD fullorðinna, Samhæfingastöð krabbameinsskimanna, Upplýsingamiðstöð, Þróunarmiðstöð íslenskrar heilsugæslu auk stoðþjónustu á skrifstofu.
Heilsuvera er samstarfsverkefni okkar og Embættis landlæknis. Þar er hægt að hafa samskipti við starfsfólk heilsugæslustöðvanna og fræðast um heilsu og áhrifaþætti hennar.
Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins hefur á að skipa sérhæfðu og metnaðarfullu starfsfólki sem vinnur í hvetjandi og áhugaverðu starfsumhverfi þar sem frumkvæði og sjálfstæði þeirra fær að njóta sín.
Starfsfólk heilsugæslunnar vinnur að því að veita íbúum höfuðborgarsvæðisins aðgengilega, samfellda og alhliða heilsugæsluþjónustu. Þjónustan byggir á sérþekkingu og víðtæku þverfaglegu samstarfi.

Sálfræðingur - Geðheilsuteymi HH austur
Vilt þú verða hluti af frábærum vinnustað?
Við Geðheilsuteymi HH austur starfar fjölbreyttur þverfaglegur hópur starfsmanna sem leggur áherslu á góða samvinnu fagstétta með hag skjólstæðingsins að leiðarljósi. Teymið vinnur eftir batahugmyndafræði þar sem einstaklingsmiðuð þjónusta ýtir undir styrkleika og bjargráð notenda.
Við leitum að sálfræðingi í teymið okkar í framtíðarstarf í 80-100% starfshlutfall. Viðkomandi þarf að geta hafið störf 1. mars nk. eða eftir nánara samkomulagi. Til greina getur komið að ráða áhugasaman reynsluminni sálfræðing í ábyrgðarminna starf fáist ekki sálfræðingur með reynslu í starfið.
Nánari upplýsingar má finna inni á www.heilsugaeslan.is
Helstu verkefni og ábyrgð
- Viðtöl á starfsstöð
- Greining og meðferð einstaklinga með geðrænan vanda
- Beiting gagnreyndra meðferða og ráðgjöf
- Notkun sálfræðilegra prófa
- Skipulagning og veiting þjónustu sem þörf er á hverju sinni
- Vinna í þverfaglegu teymi
- Námskeiðshald og fræðsla til notanda og aðstandenda
- Handleiðsla sálfræðinema og annars fagfólks
- Þátttaka í þróunarstarfi
- Samstarf við aðrar stofnanir, úrræði og samtök
Menntunar- og hæfniskröfur
- Leyfi frá landlækni til að starfa sem sálfræðingur er skilyrði
- 5 ára starfsreynsla af klínísku starfi er æskileg
- Reynsla af greiningu og meðferð fullorðinna með geðrænan vanda
- Þekking og reynsla af gagnreyndri meðferð s.s. hugrænni atferlismeðferð
- Þekking og reynsla af áfallavinnu æskileg
- Þekking og reynsla af díaletískri atferlis (DAM) meðferð kostur
- Hæfni og áhugi á teymis- og verkefnavinnu
- Góð samskiptahæfni og jákvætt viðhorf
- Faglegur metnaður og ábyrgð í starfi
- Sjálfstæði, frumkvæði og lausnamiðuð nálgun
- Góð íslenskukunnátta er skilyrði
- Góð almenn tölvukunnátta
Auglýsing birt5. febrúar 2026
Umsóknarfrestur9. febrúar 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Stórhöfði 23, 110 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
FrumkvæðiJákvæðniMetnaðurSálfræðingurSjálfstæð vinnubrögðTeymisvinna
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (12)

Skemmtileg sumarstörf - Sjúkraliði
Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins

Skemmtileg sumarstörf - Félagsliði
Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins

Skemmtileg sumarstörf - Hjúkrunarfræðingur
Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins

Íþróttafræðingur - Heimahjúkrun HH
Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins

Félagsráðgjafi - Heilsugæslan Miðbæ – tímabundið starf í eitt ár
Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins

Hjúkrunarfræðingur - Heilsugæslan Glæsibæ
Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins

Sjúkraliði - Heimahjúkrun HH
Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins

Hjúkrunarfræðingur - Heilsugæslan Hlíðum
Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins

Sjúkraliði - Heilsugæslan Miðbæ
Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins

Hjúkrunarfræðingur - Heimahjúkrun HH
Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins

Almennur læknir - Geðheilsumiðstöð barna
Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins

Hjúkrunarfræðingur Heilsugæslan Miðbæ
Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins
Sambærileg störf (6)

Forstöðumaður í Barnahúsi
Barna- og fjölskyldustofa

Sálfræðingur
Háskóli Íslands

Deildarstjóri ráðgjafar og greiningar - Mennta- og lýðheilsusvið
Hafnarfjarðarbær

Teymisstjóri í Miðjuna, miðstöð stuðnings- og stoðþjónustu
Velferðarsvið Kópavogsbæjar

Ráðgjafi í ráðgjafarteymi fullorðinna
Skrifstofa þjónustu og sértækrar ráðgjafar

Starfsfólk óskast í búsetuúrræði Vopnabúrsins
Vopnabúrið